Leikfélag Selfoss frumsýnir í kvöld leikritið Grandavegur 7 sem byggt er á samnefndri skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur. Leikstjóri sýningarinnar er Rúnar Guðbrandsson. Þetta er fjölskyldusaga þriggja kynslóða þar sem fortíð og nútíð fléttast saman. Sigrún Sighvatsdóttir, gjaldkeri Leikfélags Selfoss, er framkvæmdastjóri sýningarinnar og hún er Sunnlendingur vikunnar að þessu sinni.
Fullt nafn: Sigrún Sighvatsdóttir.
Fæðingardagur, ár og staður: Ég er fædd 21. ágúst 1975 á Selfossi.
Fjölskylduhagir: Er gift Stefáni Ólafssyni og saman eigum við þrjú yndisleg börn; Rakel Ýr, Ólaf Týr og Orra Frey.
Hverra manna ertu: Foreldrar mínir eru Sighvatur Eiríksson frá Langholti í Hraungerðishreppi og Sólrún Guðjónsdóttir frá Stóra Hofi í Gnúpverjahreppi.
Menntun: Ég er með Bed gráðu í grunnskólakennarafræðum frá Kennaraháskóla Íslands, viðbótardiplómu í Farsæld barna og er að bæta við mig viðbótardiplómu í Menntun allra í fjölmenningarsamfélagi við Háskóla Íslands.
Atvinna: Hef starfað sem deildarstjóri stoðþjónustu í Sunnulækjarskóla en er í námsleyfi þetta skólaár.
Besta bók sem þú hefur lesið: Híbýli vindanna eftir Böðvar Guðmundsson er góð bók.
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Það er alltaf gaman að horfa á The Saturday Night Live þættina.
Hvaða bíómynd getur þú horft á aftur og aftur: Ég horfi mjög mikið á bíómyndir og eru margar í uppáhaldi. Ég gæti til dæmis horft aftur og aftur á Ford vs Ferrari.
Te eða kaffi: Kaffi og stundum te.
Uppáhalds árstími: Allar árstíðir hafa sinn sjarma en sumarið er uppáhalds árstíminn. Það er geggjað að sitja úti í náttúrunni og um miðja sumarnótt í góðu sumarveðri.
Besta líkamsræktin: Það eru hjólreiðar, gönguferðir og hestastúss.
Hvaða rétt ertu best að elda: Mér finnst mjög gaman að elda alls konar mat og á frekar erfitt með að fylgja alveg uppskriftum. Eiginmaðurinn segir að ég er best í að elda Waldorf hnetusteik með heimalagaðri títuberjasultu og sveppasósu.
Við hvað ertu hrædd: Ég hræðist jarðskjálfta, eldingar og eld.
Klukkan hvað ferðu á fætur: Ég fer þessa dagana á fætur kl. 7:30.
Hvað gerir þú til að slaka á: Ég horfi á sjónvarpið, vinn í garðinum eða hlusta á rólega tónlist.
Hvað finnst þér vanmetið: Hvíld, það er mikilvægt að staldra stundum við og taka smá hvíld.
En ofmetið: Peningagræðgi.
Hvaða lag kemur þér alltaf í stuð: Það eru mörg lög sem koma til greina en núna er það Running up that hill með Kate Bush.
Besta lyktin: Mér finnst góð lyktin af hrossum.
Bað eða sturta: Ég myndi alltaf velja sturtuna en það þarf að vera góð sturta.
Leiðinlegasta húsverkið: Það er að ryksuga.
Besta ráð sem þér hefur verið gefið: Það fer allt vel að lokum.
Nátthrafn eða morgunhani: Ég er nátthrafn.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á: Það eru margir staðir fallegir á Íslandi. Þar sem eru fossar og gott útsýni í góðu veðri þar er fallegt.
Hvað fer mest í taugarnar á þér: Þegar tæki og tól virka ekki.
Neyðarlegasta atvik sem þú hefur lent í: Þegar unglingurinn ég labbaði eitt sinn í óreimuðum skóm út úr FSU og hrasaði um reimarnar fyrir framan hóp af krökkum.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór: Ég ætlaði að verða bóndi og síðar kokkur.
Fyndnasta manneskja þú veist um: Það er Stefán Ólafsson.
Ef þú fengir að vera einhver annar í einn dag hver þá: Ég væri til í að prófa að vera hæfileikaríka leikkona og prófa að leika á setti í kvikmynd en bara í einn dag.
Hvaða samfélagsmiðil notar þú mest: Það er nú mest Facebook.
Ef þú værir alvaldur í einn dag: Ég myndi koma á friði á jörð.
Eitthvað sem fæstir vita um þig: Mig getur kitlað svo svakalega á iljunum að það getur verið stórhættulegt.
Mesta afrek í lífinu: Mitt mesta afrek eru börnin mín, ég er mjög stolt af þeim.
Ef þú mættir ferðast fram eða aftur í tímann, hvert myndir þú þá fara: Ég væri til í að fara aftur í tímann og fara á tónleika með Led Zeppelin og Queen.
Lífsmottó: Gerðu góða hluti, þá gerast góðir hlutir hjá þér.
Hvað ætlar þú að gera um helgina: Ég verð mikið í Litla leikhúsinu við Sigtún en Leikfélag Selfoss frumsýnir á föstudagskvöld verkið Grandavegur 7. Önnur sýning verður síðan sunnudaginn 1. nóvember. Og hvet ég alla til að koma og sjá þessa fallegu sýningu.
Sendu okkur tilnefningu að Sunnlendingi vikunnar á netfrett@sunnlenska.is

