Magnús J. Magnússon er handhafi menningarviðurkenningar Árborgar 2026 en viðurkenningin var afhent í lok menningarmánaðarins október í síðustu viku. Magnús hefur verið atkvæðamikill í margvíslegu menningarstarfi, ekki síst í leiklist, en í marga áratugi hefur hann verið órjúfanlegur hluti af menningarlífi Árborgar. Magnús er í dag formaður Félags eldri borgara á Selfossi.

Fullt nafn: Magnús J. Magnússon.
Fæðingardagur, ár og staður: Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri 11. júní 1954.
Fjölskylduhagir: Ég er giftur Ágústu Baldursdóttur. Við eigum fjögur börn, níu barnabörn og eitt á leiðinni og eitt barnabarnabarn.
Hverra manna ertu: Faðir minn var Magnús J. Kristinnson, rafvélavirkjameistari fæddur 15. október 1920, látinn 24. október 1990. Móðir mín var Sigríður Ingimarsdóttir, húsfreyja, fædd 29. maí 1916 og látin 23. apríl 1976. Allar ættir úr Eyjafirði og Skagafirði.
Menntun: Ég var í Barnaskóla Akureyrar sem var kallaður Barnaskóli Íslands og Gagnfræðaskóla Akureyrar. Stúdent frá Menntaskólanum á Ísafirði. Bed gráða frá KHÍ 1983 og síðan mastersgráða í stjórnun menntastofnana frá HÍ.
Atvinna: Er núna virkur lífeyrisþegi en var kennari og skólastjórnandi í 49 ár. Það var enginn leiðinlegur dagur í því starfi.
Besta bók sem þú hefur lesið: Það er bókin Bomby Bitt sem sló í gegn hjá mér þegar ég las hana fyrst. Hef lesið hana nokkrum sinnum aftur og hún virkar enn. Auðvitað hefur maður lesið ótrúlegt magn góðra bóka en þessi náði til mín.
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Get ekki tekið einn út. Allir góðir breskir sakamálaþættir eru í uppáhaldi hjá mér. Vel leiknir og vandaðir.
Hvaða bíómynd getur þú horft á aftur og aftur: Love Actually snertir alla mína listrænu enda og ég get horft á hana aftur og aftur En einnig Notting Hill. Frábær og mannleg mynd.
Te eða kaffi: Kaffi yfir daginn og te annað slagið.
Uppáhalds árstími: Haustið með allt sitt rökkur og fallega haustliti. Kemur ró eftir skemmtilegt sumar.
Besta líkamsræktin: Gönguferðir, sund og góður golfhringur.
Hvaða rétt ertu bestur að elda: Steiktar kjötbollur í brúnni sósu er snilldin ein hjá mér. Formið á bollunum verður að vera fullkomið.
Við hvað ertu hræddur: Ákveðna hæð. Kallast lofthræðsla en það hefur eitthvað rjátlast af manni.
Klukkan hvað ferðu á fætur: Er vanalega kominn til verka um sjöleytið á morgnana.
Hvað gerir þú til að slaka á: Les eða hlusta á góða bók eða horfi á efnislitla kvikmynd sem tæmir kollinn.
Hvað finnst þér vanmetið: Næring mannlegra samskipta.
En ofmetið: Uppeldi samfélagsmiðla. Þau áhrif sem þeir hafa á umhverfi sitt.
Hvaða lag kemur þér alltaf í stuð: Paradise by The Dashboard Light með Meatloaf. Hrein snilld! Sviðsetti það einu sinni á Árshátíð Hólabrekkuskóla.
Besta lyktin: Það er lykt af nýfæddu börnunum mínum. Þetta er andartak sem er órjúfanlegt í minningunni.
Bað eða sturta: Sturta.
Leiðinlegasta húsverkið: Að skúra gólf.
Besta ráð sem þér hefur verið gefið: Sá sem áreitir þig er veikari en þú.
Nátthrafn eða morgunhani: Morgunhani allan daginn. Þá er ró og þá er friður.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á: Fallegt rjóður í Vaglaskógi. Þar lifna æskuminningarnar alltaf við, útilegur og sæla.
Hvað fer mest í taugarnar á þér: Það er að vera ekki samkvæmur sjálfum sér og leti.
Neyðarlegasta atvik sem þú hefur lent í: Ég var nýfluttur til Reykjavíkur 1977 og sótti um kennslu í Breiðholtsskóla. Var sagt að mæta í viðtal kl. 12:00 daginn eftir. Fer alveg tilbúinn til allra verka daginn eftir, tek vagn upp í Breiðholt, sem stoppar við skóla. Fer inn, hitti skólastjóra og yfirkennara og er ráðin og þá kemur í ljós að þetta var Hólabrekkuskóli. Hafði tekið leið 13 en ekki leið 12. Var í Hólabrekku í 6 ár.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór: Alltaf kennari eða leikstjóri. Þetta með mannleg samskipti heillaði mig alltaf. Hafa áhrif á. Móta, skapa, það var það sem, ég hafði áhuga á.
Fyndnasta manneskja þú veist um: Veit ekki alveg hvernig ég svar þessu en í mínum huga er Charles Chaplin snillingur, fyndinn með sterka undirtón.
Ef þú fengir að vera einhver annar í einn dag hver þá: Baltasar Kormákur í leikstjórahlutverki. Það væri verulega gaman. Hann er frábær leikstjóri og samkvæmur sjálfum sér í því.
Hvaða samfélagsmiðil notar þú mest: Fésbókina.
Ef þú værir alvaldur í einn dag: Útrýma fátækt, stríði og hvers konar mismunum.
Eitthvað sem fæstir vita um þig: Get ekki alveg áttað mig á því!
Mesta afrek í lífinu: Börnin mín alltaf.
Ef þú mættir ferðast fram eða aftur í tímann, hvert myndir þú þá fara: Kanna tónlist og fatatískuna á millistríðsárunum.
Lífsmottó: Eyða ekki orkunni í pirring og leiðindi. Ef þú ert pirraður út í einhvern og hann er að njóta sín á Spáni, hver þjáist?
Hvað ætlar þú að gera um helgina: Fara á dansleik eldri borgara á Suðurlandi sem verður í Félagsheimilinu á Flúðum föstudagskvöldið 6. nóvember og byrjar kl. 19:00.


Sendu okkur tilnefningu að Sunnlendingi vikunnar á netfrett@sunnlenska.is

Fyrri grein„Svipað mikill áhugi fyrir fléttunum og bjórnum“