Þórunn Hafdís Stefánsdóttir sigraði í Söngkeppni Nemendafélags Fjölbrautaskóla Suðurlands sem fram fór í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi í gærkvöldi.
Þórunn vann hug og hjörtu gesta í Iðu og dómnefndarinnar með kraftmiklum og öruggum flutningi á gamla Trúbrot laginu Ég veit að þú kemur.
Í 2. sæti varð Bryndís Embla Einarsdóttir frá Selfossi með Bríetarlagið Djúp sár gróa hægt og í 3. sæti varð Selfyssingurinn Arnar Logi Hafsteinsson með Billy Joel lagið She’s Always a Woman, sem á íslensku nefnist Íslenska konan.
Selfyssingurinn Heimir Karl Rafnsson frá Grindavík fékk svo verðlaun fyrir skemmtilegasta atriðið en hann flutti The Red Clay Strays lagið Wondering Why.
Tólf keppendur tóku þátt í keppninni sem er einn af hápunktum félagslífsins í Fjölbrautaskóla Suðurlands ár hvert. keppnin var glæsileg en þema kvöldsins var Kvikmyndir. Manúela Maggý Morthens, sigurvegari síðasta árs, opnaði kvöldið með sigurlaginu frá því í fyrra, Koppafeiti lék undir í keppninni og hljómsveitin Bíddu skemmti gestum í hléi.


