Út er komin bókin Holts saga eftir Óskar Guðmundsson rithöfund og sagnfræðing. Bókin er 400 síður í allstóru broti, ríkulega myndskreytt og spannar sögu Holts undir Eyjafjöllum og nágrennis allt frá landnámi til okkar daga.
Hér er rakin saga prestsseturs og þúsund ára saga mannlífs undir Eyjafjöllum; klerka, kvenna og karla. Saga ábúenda, ættanna og fólksins sem þar hefur erjað land og elskað í aldanna rás. Sagan hefst með landnámi Ásgerðar ömmu Njáls á Bergþórshvoli sem sat staðinn á tíundu öld. Staðurinn varð snemma prestssetur og miðstöð í héraði. Þótt klerkarnir í Holti séu fyrirferðarmiklir í sögunni er sjónum jöfnum höndum beint að öðru fólki sem býr á staðnum og tengist honum með margvíslegum hætti.
Frá öndverðu hafa spunnist sögur af mannlífinu undir Eyjafjöllum, mögnuðu umhverfi sem á áreiðanlega sinn þátt í mótun sagna af yfirnáttúrulegum toga.
Frásögnin er krydduð fjölda sagna af furðum og huldum vættum – um leið og leitast er við að gæta sagnfræðilegs samhengis í framvindu sögunnar. Sömuleiðis prýða bókina grafískar töflur, myndræn framsetning á ættartöflum sem sýna vensl og hagsmuni og samhangandi sögu staðar í Holti. Staðurinn var um alda skeið meðal eftirsóttustu brauða landsins og margir klerkanna þar auðguðust og efldust á veraldlega vísu.
Frá staðnum var sömuleiðis um aldir stunduð útgerð og fjöldi jarða og ábúenda kirkjujarða og hjáleiga Holts kom við sögu búnaðarins í Holtshverfi. Sjálft landið þótti og löngum gjöfult og vænt, þótt fólkið hafi jafnframt búið við ógnir nátúrunnar sem í einni svipan gátu eyðilagt allt lifibrauð í sveitinni. Fólkinu er fylgt sem þarna bjó í gegnum eldgos og ofsavinda frá öld til aldar. Fjöllin fóstruðu einstæðar frásagnir, listir og menningu, þar sem fjöldi kvenna kemur við sögur og eru færðar til bókar.
Margir ógleymanlegir klerkar sátu staðinn og hafa sett mark sitt á þjóðlíf í landinu allt til vorra daga. Í Holti sat ættfaðirinn mikli, Þorvaldur Böðvarsson skáldprestur á nítjándu öld – og í Holti orti skáld Hamars og sigðar sig í sátt við guð og menn á 20. öld – sr. Sigurður Einarsson í Holti.
Þjóðsögur og þjóðhættir hafa löngum átt heimkynni undir Eyjafjöllum, og alið af sér fólk til frásagnar, eins og Hólmfríði Þorvaldsdóttur á 19. öld og Þórð Tómasson í Skógum á þeirri tuttugustu. Af þeim sagnabrunni er óspart ausið í þessari bók.
Eftirminnilegar konur stjórnuðu löngum staðnum og settu sitt mark á söguna, og hér segir af heitum ástum og miklum örlögum. En fleira kvikt kemur og við sögu. Á nítjándu öld urðu landsfrægir hestar til varpa ljóma á staðinn í tíð sr. Björns Þorvaldssonar í Holti. Undan handarjaðri hans eru komnir úrvalshestar sem skipa sess í bókmenntasögunni; Stjarna skáldsins Páls Ólafssonar og Sóti Gríms Thomsen. Sú er líka sögn að þegar prestur kvaddi sér hljóðs í brúðkaupsveislu vinafólks síns hafi hátíðarræða hans hljómað svo: Þetta er merkisdagur hjá ykkur, en þetta er merkisdagur að mörgu öðru leyti, meðal annars er þetta afmælisdagur Steingríms biskups og Gömlu Rauðku í Holti!
Margvíslegar framfarir áttu sér stökkpall til framtíðar í Holti; allt frá olíulömpum úr Hannibalsstrandinu 1871, hjólbörum og vagnhjólum á öldinni nítjándu til verslunarfélaga eins og Kaupfélags Hallgeirseyjar á öndverðri 20. öld. Og ekki vita margir að klerkurinn í Holti, sr. Jakob Ó. Lárusson, varð fyrstur til að flytja brúklega bifreið til landsins – og ók henni áleiðis að brauði sínu árið 1913. Enda sagði vinur hans, Jónas frá Hriflu: „Sr. Jakob Ó. Lárusson flutti nútímahraðann inn í líf landa sinna.“
En sjálfsagt vekja dularmögn undir Eyjafjöllum einna mestan áhuga, en þjóðsögur af huldum vættum og duldum dómum lifa mjög í landi undir Eyjafjöllum allt fram á okkar daga. Þar segir af kraftaverkum frá öndverðu til vorra daga, en sr. Jón M. Guðjónsson vitnar um kraftaverk árið 1941 og síðasti staðarklerkurinn naut líka ljóss undranna – en hann segir frá draumfurðum við Eyjafjallagosið 2010 og loks er sr. Halldór flytur messu á hvítasunnudag 2010 og biður þess að gosi ljúki var honum svarað „með krafti heilags anda“, og gosinu lýkur!

