Skemmtileg dagskrá á Alþjóðlega safnadeginum

Brynhildur Þorgeirsdóttir kynnir ný verk: Fjöllin í Árnessýslu.

Alþjóðlegi safnadagurinn verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 18. maí, næstkomandi. Þema safnadagsins þetta árið er „Söfn í þágu fræðslu og rannsókna“.

Haldið verður upp á daginn í Listasafni Árnesinga í Hveragerði með fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá.

Á milli kl. 13 og 15 verður hægt að búa til sinn eigin flugdreka en Arite Fricke mun leiða flugdrekasmiðju. Allt efni verður á staðnum en nauðsynlegt er að skrá sig á fraedsla@listasafnarnesinga.is.

Klukkan 15 mun Brynhildur Þorgeirsdóttir kynna ný verk; Fjöllin í Árnessýslu og klukkan 16 munu Hróðmar Sigurðsson og Ingibjörg Elsa Turchi koma fram á ókeypis tónleikum.

Nánari upplýsingar má finna á vef safnsins og einnig á samfélagsmiðlum. Allir viðburðirnir eru ókeypis og öll velkomin.

Fyrri greinAusturvegur lokaður í kvöld
Næsta greinFjaðrárgljúfur friðlýst