Saga saumuð á refil

Laugardaginn 15. júlí kl. 15:00 heldur dr. Reynir Tómas Geirsson fyrirlestur að Kvoslæk í Fljótshlíð.

Reynir kallar fyrirlesturinn Saga saumuð á refil. Þar mun hann fjalla um tilurð Bayeux-refilsins frá 11. öld, sem er varðveittur í borginni Bayeux í Normandi í Frakklandi.

Fyrirlesturinn hefst sem fyrr segir kl. 15 og er aðgangur ókeypis.

Fyrri greinHamarsmenn fóru stigalausir frá Borgarnesi
Næsta greinMoskvít með nýjan óð til verkafólksins