Pólskir menningardagar í Listasafni Árnesinga

Listasafn Árnesinga. Ljósmynd/Aðsend

Þessa dagana standa yfir pólskir menningardagar í Listasafni Árnesinga í Hveragerði undir yfirskriftinni POL IS ART III. Þetta er í þriðja sinn sem pólskir menningardagar eru haldnir á safninu og í ár er unnið með pólska galleríinu Galeria Arsenał.

Dagskráin hófst um síðustu helgi með sýningaropnun, listamannaspjalli og dúkristusmiðju. Fimmtudaginn 5. nóvember verður núvitundarlistasmiðja þar sem unnið er með þurrpensil, svartan lit og fína penna og laugardaginn 21. nóvember verður textílsmiðja með Małgorzata Porażewska. Skráning í smiðjurnar fer fram á fraedsla@listasafnarnesinga.is.

Listamannatvíeykið Lukas Bury og Weronika Balcerak sýna í sal 2 í safninu og Monika Szewczyk, sýningarstjóri hjá Galeria Arsenał, hefur sett saman prógram sem verður kynnt í vídeóhorni safnsins.

Martyna Hopsa er verkefnastjóri og hugmyndasmiður daganna. Verkefnið hefur vaxið og eflst með hverju árinu og er orðið mikilvægur þáttur í samfélags- og menningarstarfi safnsins. Meginmarkmið verkefnisins er að skapa lifandi vettvang þar sem pólsk og íslensk menning mætast, efla tengsl milli íbúa af ólíkum uppruna og stuðla að virkri þátttöku í menningarlífi samfélagsins.

Fyrri greinKrónan styður fjölbreytt verkefni á Suðurlandi