Óskalögin við orgelið

Jón Bjarnason við orgelið í Skálholti. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Næstu þrjá fimmtudagsmorgna frá kl. 11 til 12 ætlar Jón Bjarnason, organisti Skálholtsdómkirkju, að sitja við orgelið í kirkjunni og taka við óskalögum.

Fyrsti viðburðurinn verður á morgun, 1. júlí og síðan 8. og 15. júlí, alltaf á sama tíma. Þetta er viðburður fyrir alla sem hafa gaman af því að hlusta á tónlist og sérstaklega að fá að velja næsta lag!

Jón er eins og lifandi glymskratti því hann getur spilað nánast hvað sem er á orgelið. Viltu heyra hvernig Abba, Queen eða Kaleo hljóma á orgelið? Hvað með öll íslensku sönglögin eða sálmana? Jón getur spilað þetta allt.

Gestir mæta í kirkjuna, velja lög af lista og Jón spilar óskalögin. Viðburðurinn er tilvalinn fyrir einstaklinga, fjölskyldur og hópa sem hafa gaman að því að hlusta á lög og jafnvel taka lagið. Allir eru hvattir til að koma í kirkjuna, njóta samveru og tónlistar.

Viðburðurinn er hluti af fjáröflun til fegrunar Skálholtsdómkirkju en tekið er á móti frjálsum framlögum, og þátttakendur fá hádegisverðartilboð á Veitingahúsið Skálholti.

Fyrri greinFramrás lægstbjóðandi í tveimur útboðum
Næsta greinEysteinn Fannar Noregsmeistari í kraftlyftingum