Opnunarviðburður Óperunnar í Skálholtskirkju

Undir sömu stjörnu er heitið á stórskemmtilegum tónleikum í Skálholtskirkju þann 8. nóvember næstkomandi. Þar flytja söngvarar Óperunnar nokkrar fegurstu perlur óperubókmenntanna ásamt Sinfóníuhljómsveit Suðurlands, Kammerkór Rangæinga, Skálholtskórnum og Kammerkór Norðurland.

Söngvarar Óperunnar eru þau Gunnar Björn Jónsson, Hildigunnur Einarsdóttir, Kristín Einarsdóttir Mäntylä og Kristján Ingi Jóhannesson og auk þeirra kemur baritónsöngvarinn Gunnlaugur Bjarnason fram á tónleikunum. Hljómsveitarstjóri er Guðmundur Óli Gunnarsson.

Þau Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Örn Árnason munu svo sjá um að leiða áhorfendur í gegnum óperusöguna, allt frá hirðsölum Ítalíu að Íslands ströndum.

Það er stefna hinnar nýju Óperu að ná til landsins alls og vinna með listafólki á landsbyggðinni. Að sögn Guðmundar Óla Gunnarssonar, hljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitar Suðurlands, er þetta afar ánægjuleg og mikilvæg stefna og þetta fyrsta samstarfsverkefni hinnar nýju Óperu og Sinfóníuhljómsveitar Suðurlands lofar sannarlega góðu að hans sögn.

Miðasala er í fullum gangi á operan.is

Fyrri greinGengið um Öndverðarnes á fyrsta degi vetrar