Ómissandi tónleikar á aðventunni

Karlakór Selfoss. Ljósmynd/Stúdíó Stund

Karlakór Selfoss heldur sína árlegu jólatónleika í Skálholti í kvöld, mánudaginn 11. desember og í Selfosskirkju þriðjudaginn 19. desember.

Jólatónleikar Karlakórs Selfoss eru ómissandi viðburður í jólaundirbúningi margra Sunnlendinga, efnisskráin er fjölbreytt og má þar finna ýmiskonar léttmeti ásamt hátíðlegum söng, eitthvað sem kemur öllum í jólaskapið. Skálholtskórinn mun einnig koma fram á tónleikunum í Skálholti í kvöld, þar sem margar klassískar jólaperlur munu hljóma.

Stjórnandi Karlakórs Selfoss er Skarphéðinn Þór Hjartarson og hefur hann útsett mörg þeirra laga sem á efnisskránni eru. Píanóleikari kórsins er Jón Bjarnason og hann stjórnar einnig Skálholtskórnum.

Báðir tónleikarnir hefjast klukkan 20. Aðgangur er ókeypis en tekið er á móti frjálsum framlögum sem renna óskipt í Sjóðinn góða. Posi verður á staðnum á báðum tónleikunum.

Fyrri greinHamar úr leik í bikarnum
Næsta greinBorgarafundur um íþróttaaðstöðu í Hveragerði