Fyrir skömmu kom út bókin Skepnufólk eftir Hörpu Rún Kristjánsdóttur frá Hólum við Heklurætur. Þetta er sjöunda bók Hörpu Rúnar en hún sendi meðal annars frá sér ljóðabókina Eddu sem hún hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2019.
„Bókin fjallar um sauðfjárbændur og skepnurnar þeirra. Mig langaði til þess að segja sögu úr sveitasamfélagi nútímans og þeim áskorunum sem það stendur frammi fyrir í dag,“ segir Harpa Rún í samtali við sunnlenska.is.
„Stóra hreyfiaflið í sögunni er svo búfjársjúkdómur, sem leggst á sveitina með þeim afleiðingum að bændur þurfa að skera niður búfé á fleiri en einum bæ. Þetta er veruleiki sem fólk til sveita hefur þurft að horfast í augu við ítrekað í gegnum árin og mig langaði til að reyna að takast á við í skáldskapnum.“
Ekki samasafn af furðufuglum
Aðalpersónur bókarinnar er vinahópur á fertugsaldri, fólk sem hefur ákveðið að vera um kyrrt í sveitasamfélaginu og halda áfram búskap á bæjunum þar sem þau ólust upp.
„Þetta eru manneskjur sem þurfa að takast á við búmannsraunir en líka nútímann, sjálf sig, sambönd og ástina. Þetta er saga um vináttu milli fólks en líka samband okkar við skepnurnar. Hún fylgir bændasamfélaginu frá sauðburði og fram að fengitíma. Hugmyndin var að hún fangaði samfélagsgerð og tungutak en segði líka frá verksviði og opnaði kannski glugga inn í heim sem sífellt færri þekkja.“
„Mig langaði að sýna sveitina eins og hún er. Ekki sem samansafn af einhverjum furðufuglum heldur bara manneskjur sem búa við ákveðnar aðstæður sem eru kannski langt frá sumum lesendum. Ég held að hún sé bæði fyndin og sár en fyrst og fremst vonandi svolítið sönn, þó hún sé skáldskapur.“
Erfitt að fjalla um sárin
Harpa Rún segir segir að á undanförnum árum hafi umræða um geðheilbrigði bænda aukist og gerðar hafa verið rannsóknir sem beinast sérstaklega að þessari stétt.
„Stundum er skáldskapurinn besta leiðin til þess að takast á við það erfiðasta í raunveruleikanum og mig langaði til þess að spegla þetta samfélag fólks sem er vant því að bera harm sinn í hljóði.“
„Búfjársjúkdómar eru risastórt sár í sveitasamfélaginu og þegar ég byrjaði að vinna bókina þá fannst mér ég eiginlega ekki geta fjallað um þetta efni. Á þeim tíma sem ég hef verið að vinna í henni varð hins vegar bylting í riðurannsóknum á Íslandi sem hefur gerbreytt nálguninni á þann sjúkdóm og í rauninni bara sauðfjárræktinni allri.“
„Þetta vekur von og breytti andrúmsloftinu þannig að mér fannst gerlegra að vinna bók sem tekst á við þetta efni. Maður vonar kannski að það sem í upphafi skrifanna var raunveruleiki sé meira eins og veröld sem var. En kannski getur hún líka verið áminning og minnisvarði um að við megum ekki sofna á verðinum þegar kemur að því að passa upp á sóttvarnir þegar kemur að landbúnaði á Íslandi.“
Drögin 20.000 orðum lengri en bókin sjálf
Það tók Hörpu Rún sex ár að skrifa bókina. „Ég var byrjuð að teikna hana upp árið 2020 og þá hófst rannsóknarvinnan og persónusköpunin og vinnan við að búa til heiminn. Síðan gerðist mjög margt í millitíðinni. Ég eignaðist barn, skrifaði ljóðabók og barnabók og tvö leikrit svo eitthvað sé nefnt.“
„Handritið hefur tekið marga spretti þar sem ég vinn mikið og svo fær það að liggja inni á milli – sem var nauðsynlegt í þessu tilfelli. Ég var heppin með frábæra yfirlesara og ritstjóra sem stóðu með þessu og hjálpuðu mér að betrumbæta og breyta.“
„Drögin sem ég sendi á útgefandann minn í janúar á þessu ári voru til dæmis næstum 20.000 orðum lengri en bókin er núna – það er svona eins og ein MA ritgerð sem fór í ruslið! En það er allt hluti af ferlinu og eitthvað sem þurfti að gerast til að slípa hana niður í endanlegt form.“

Skepnufólk kom út 15. október síðastliðinn og hefur hlotið góðar viðtökur. Þess má geta að 15. október er einmitt alþjóðlegur dagur dreifbýliskvenna. „Ég veit um einn lesanda sem las hana alla og sendi mér svo nokkuð nákvæman lista yfir þau sem ættu að leika í bíómyndinni. Svo er litli bróðir að lesa hana sem hljóta að teljast meðmæli því hann les nú eiginlega aldrei staf – en hins vegar sagði hann að hún væri ljót og færi versnandi svo ég veit ekki hvernig á að lesa í það,“ segir Harpa Rún að lokum.
Skepnufólk er fáanleg í öllum helstu bókaverslunum. Einnig er hægt að hafa samband við Hörpu Rún og kaupa bók beint af henni.

