Sveitarfélagið Árborg veitir Menningarviðurkenningu Árborgar næstkomandi fimmtudag, þann 29. október kl. 14:30 í Grænumörk á Selfossi.
Viðurkenningin er veitt vegna framúrskarandi starfa í þágu menningarlífs í Árborg en viðburðurinn er hluti af dagskrá Menningarmánaðarins október.
Hörpukórinn undir stjórn Stefáns Þorleifssonar syngur við athöfnina en Kjartan Björnsson, formaður menningarnefndar, mun afhenda viðurkenninguna fyrir hönd sveitarfélagsins.
Í kjölfar afhendingarinnar verður viðburður á vegum Félags eldri borgara á Selfossi sem tekur virkan þátt í menningarmánuðinum í ár sem áður.

