Menningarganga í fyrsta sinn í Árborg

Alda Rose, Sigrún, Auður og Dóra leggja upp í menningargöngu. Ljósmynd/Páll Jökull Pétursson

Laugardaginn 22. október verður boðið upp á Menningargöngu Árborgar í allra fyrsta sinn en gangan er hluti af dagskrá menningarmánaðarins október í Árborg.

Þá ætlar listafólk í Árborg að opna vinnustofur sínar og gallerí fyrir gestum og gangandi, leyfa fólki að líta við og skoða afrakstur sköpunar sinnar. Einnig verða ýmis menningarhús opin þar sem upplifa má fjölbreytt listform svo sem málaralist, leirlist, tónlist, ritlist, prjónalist, fatahönnun, vefnað, ljósmyndun og útskurð.

Að baki menningargöngunni standa þær Auður I. Ottesen, eigandi Sumarhússins og garðsins, Alda Rose Cartwright, eigandi Brimrótar CO-UP á Stokkseyri, Heiðrún D. Eyvindardóttir, forstöðumaður Bókasafns Árborgar og Sigrún Þuríður Runólfsdóttir, eigandi Skrúfunnar á Eyrarbakka. Með framtakinu vilja þær sameina krafta þeirra frábæru listamanna sem búa í Árborg og leyfa sem flestum að upplifa þá margþættu sköpun sem þar fer fram.

40 listamenn á 22 stöðum
Fjórmenningarnir stofnuðu fésbókarsíðuna Menningarvitar í Árborg sem vettvang fyrir listamenn og áhugafólk um listir og menningu til að miðla og njóta gróskumikils menningarlífs í sveitarfélaginu. Þær hvetja alla áhugasama um að fylgja síðunni.

Nú um helgina er tækifæri til að virða fyrir sér list, mögnuð málverk og listilega mótað keramik, skoða aðventuskreytingar, hlýða á sögur og ljóð, skoða vefnað úr þara, læra að gera eigin olíuliti, hlusta á fallega tóna, njóta skartgripalistar, ljósmynda og prjónalistar, sjá handgerða útskorna fugla úr tré, upplifa hringlaga ullarlistaverk og vegan súkkulaðitrufflur, finna ilminn af handgerðum náttúrusápum og hlusta á magnaða tónlistarkonu spila á sekkjarpípu.

Viðburðir Menningargöngunnar eru ótal margir og afar fjölbreyttir en um það bil 40 listamenn taka þátt á 22 stöðum. Aðgangur er ókeypis og því er ekkert til fyrirstöðu að bregða undir sig betri fætinum og gera sér dagamun. Upptalningu á dagskránni má sjá hér að neðan.

Ljósmynd/Páll Jökull Pétursson
Fyrri greinEinar bauð til veislu fyrir vestan
Næsta greinHlakkar til að kynna „Skannað og skundað“ fyrir viðskiptavinunum