Makalaus sambúð frumsýnd í kvöld

Leikfélag Ölfuss frumsýnir í kvöld gamanleikritið „Makalaus sambúð“ eftir Neil Simon. Leikritið verður sýnt í Versölum í Ráðhúsi Ölfuss og leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson.

Leikritið fjallar á kómískan hátt um vinkonur í spilaklúbbi, gleði þeirra og raunir. Það gengur á ýmsu, ekki hvað síst þegar ofurhúsmóðirin Elísabet flytur inn til Margrétar sem er ekki alveg jafn skipulögð. Þá eru spænsku bræðurnir Manolo og Jesus ekki til að bæta samskipti milli vinkvennanna.

Leikarar eru Ásta Margrét Grétarsdóttir, Magnþóra Kristjánsdóttir, Aðalsteinn Jóhannsson, Árný Leifsdóttir, Ingólfur Arnarson, Oddfreyja H. Oddfreysdóttir, Þuríður Sigurrós Sigurðardóttir og Þrúður Sigurðar.

Frumsýnt verður í kvöld en önnur sýning er föstudaginn 25. október.

Fyrri greinEiríkur, Snorri og Tómas í Árborg
Næsta greinGamlir sjónvarpsþættir sýndir í Héró