Magnús hlaut menningarviðurkenningu Árborgar

Magnús J. Magnússon. Ljósmynd/Aðsend

Menningarviðurkenning Árborgar 2026 var veitt við fjölmenna og fjöruga athöfn í Grænumörk í dag, 29. október. Menningarviðurkenningar Árborgar 2026 kom í hlut Magnúsar J. Magnússonar.

Athöfnin hófst með því að Hörpukórinn söng undir stjórn Stefáns Þorleifssonar. Þar á eftir afhenti Kjartan Björnsson Magnúsi viðurkenningargripinn og hafði meðal annars um hann þessi orð:

„Handhafi menningarviðurkenningar Árborgar 2026 er vel þekktur hér í sveitarfélaginu enda hefur viðkomandi verið atkvæðamikill í margvíslegu menningarstarfi, ekki síst leiklist. Magnús setti upp sitt fyrsta leikrit með skátafélaginu sínu í Akureyrarkirkju, þá 11 ára gamall, síðan hefur hann frumsýnt 125 leiksýningar og af þeim samið 50–60 sjálfur. Það er óhætt að segja að menningin bókstaflega spretti upp í kringum hann, hvar sem hann drepur niður fæti og í marga áratugi hefur hann verið órjúfanlegur hluti af menningarlífi Árborgar.“

Kjartan flutti ræðu. Ljósmynd/Aðsend

Það var einróma ákvörðun Menningarnefndar Árborgar að veita Magnúsi þessa viðurkenningu í ár og þakka honum um leið fyrir hans ómetanlega menningarstarf í þágu samfélagsins.

Verðlaunagripurinn var handtálgaður Jaðrakan eftir myndlistarmanninn Hafþór Ragnar Þórhallsson.

Magnús með verðlaunagripinn. Ljósmynd/Aðsend
Hörpukórinn söng undir stjórn Stefáns Þorleifssonar. Ljósmynd/Aðsend
Fyrri greinÞingað um skólamál við ströndina