Ljóða- og sögustund austan fjalls

Það verður ljóða- og sögustund í Nauthólum 24 á Selfossi á morgun. Ljósmynd/Aðsend

Á morgun, laugardag, verður ljóða- og sögustund í Nauthólum 24 á Selfossi, klukkan 14:00.

Ljóðskáldin og rithöfundarnir Harpa Rún Kristjánsdóttir, Kristrún Guðmundsdóttir, Margrét Gísladóttir og Vala Hauksdóttir munu lesa valið efni úr nýju bókunum sínum.

Þær hafa allar hlotið viðurkenningar fyrir verk sín, Harpa Rún bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir ljóðabókina Eddu 2019 og Kristrún viðurkenningu bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar fyrir ljóðabókina Fingurkoss 2000. Margrét Gísladóttir á eitt af 10 bestu ljóðum Orðskjálfta úr bókinni Við vegg tímans 2025 og Vala Hauksdóttir hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóðið Verk að finna 2024 og var tilnefnd til Maístjörnunnar fyrir ljóðabókina Félagsland 2026.

Fyrri greinHáskólafélagið fékk rekstrarstyrk fyrir Fjölheima
Næsta grein„Svipað mikill áhugi fyrir fléttunum og bjórnum“