Leikfélag Selfoss frumsýnir leikverkið Grandaveg 7 föstudaginn 30. október. Verkið er byggt á samnefndri skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur og leikgerð Kjartans Ragnarssonar og Sigríðar Margrétar Guðmundsdóttur.
Leikstjóri sýningarinnar er Rúnar Guðbrandsson. Hann hefur áður leikstýrt þremur sýningum hjá Leikfélagi Selfoss: Sólarferð, Kirsuberjagarðinum og Djöflaeyjunni.
Þetta er fjölskyldusaga þriggja kynslóða þar sem fortíð og nútíð fléttast saman. Húsið að Grandavegi 7 geymir sögu þriggja kynslóða – íslenska fjölskyldusögu um brennandi ást, sáran missi og leyndarmál sem tíminn fær ekki afmáð. Fortíð og nútíð fléttast saman, minningar vakna til lífsins og mörkin milli veruleika og draums verða óljós.

Hin unga Fríða er gædd skyggnigáfu og sér heiminn öðrum augum en flestir. Í gegnum hana kynnumst við áhrifamikilli örlagasögu sem á sér djúpar rætur í íslenskum veruleika og afhjúpar smám saman tengsl persónanna við fortíðina.
Sýningin er ekki við hæfi barna yngri en 13 ára.
Sýnt er í Litla leikhúsinu við Sigtún og er sýningarfjöldi takmarkaður, þannig að fólk er hvatt til að tryggja sér miða sem fyrst en miðasala er hafin á tix.is.



