Leiðsögn um sýninguna Missi

Ljósmynd/Byggðasafn Árnesinga

Sunnudaginn 31. október klukkan 14:00 verður leiðsögn um sýninguna Missi í Byggðasafni Árnesinga í Húsinu á Eyrarbakka.

Þar eru til sýnis persónulegir hlutir sem urðu dýrgripir eftirlifenda þegar ástvinur dó. Látlausir hlutir líkt og pappírsbátur, herðasjal og sparibaukur geyma oft mun dýpri sögu en virðist í fyrstu. Á sýningunni Missi er ljósinu beint að þessum fallega sið og tilfinningagildi gripanna heiðrað.

Linda Ásdísardóttir, sýningarstjóri, mun leiða gesti í gegnum þessa einstöku sýningu sem engin ætti að láta framhjá sér fara. Sýningin hefur verið vel sótt og er þetta síðasta sýningarhelgin.

Jafnframt er þetta síðasta helgaropnun Byggðasafnsins í tilefni Menningarmánaðar í Árborg, opið laugardag og sunnudag frá klukkan 13:00-17:00. Enginn aðgangseyrir.

Fyrri greinFSu lokað vegna kórónuveirusmita
Næsta greinSkjálfti fannst vel í Hveragerði