Landið með fránum augum Ásgríms

Rakel Pétursdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Laugardaginn 1. apríl kl. 14:00 mun Rakel Pétursdóttir, safnafræðingur, verða með leiðsögn um afmarkaðan hluta sýningarinnar Hornsteinn í Listasafni Árnesinga, Hveragerði. Aðgangur er ókeypis.

Fjallað verður sérstaklega um verk Ásgríms Jónssonar á sýningunni í tenglum við verkefnið Ásgrímsleiðin, þar sem boðið verður upp á skipulegar ferðir á slóðir Ásgríms í Árnessýslu í samvinnu við Byggðasafn Árnesinga og Listasafn Íslands.

Í dag er Rakel sjálfstætt starfandi sérfræðingur en um 35 ár gegndi hún stöðu sérfræðings og deildarstjóra fræðsludeildar og síðar rannsókna og sérsafna við Listasafn Íslands. Rakel mun fjalla um mótunarár og feril Ásgríms Jónssonar og áhrif verka hans í tengslum við þjóðernisvakningu og sjálfstæðisbaráttu Íslendinga á fyrri hluta tuttugustu aldar.

Fyrri greinNiðurstaða alútboðsins mikil vonbrigði
Næsta greinErtu sjóðfélagi í Almenna Lífeyrissjóðnum?