Jóna Björk Jónsdóttir opnar sýningu í Listagjánni í Bókasafni Árborgar á Selfossi í dag, mánudaginn 18. nóvember.
„Ég er menntaður grunnskólakennari með myndmennt sem valfag. Vegna alvarlegs þunglyndis þurfti ég að hætta vinna og var í allmörg ár svo áhugalaus um lífið að ég hvarf að mestu inn í sjálfa mig og hafði enga löngun til þess að gera nokkuð eða yfirhöfuð að vera á lífi. Þunglyndissjúklingum er kennt að til þess að koma til baka þá þurfi þeir að gera hluti sem voru þeim ánægjulegir fyrir veikindin. Ég hafði alltaf haft mikla ánægju af því að teikna og mála. Samt hafði ég eiginlega ekki framtakssemi til þess að gera þetta á eigin spýtur,“ segir Jóna Björk.
„Ég var svo heppin að á þessum tíma var starfrækt Batasetrið á Selfossi. Einu sinni í viku var félagsmönnum boðið að koma og mála saman. Það þurfti bara að mæta, allt efni var á staðnum. Ég mætti þarna og smá saman fór ég að finna aftur fyrir gleðinni sem fylgir því að skapa eitthvað. Myndirnar mínar eru mér því dýrmætar á svo marga vegu. Ekki síst sem mikilvægur hlekkur í því að halda mér á góðum stað í glímunni við þunglyndið ásamt samveru við ástvini, hreyfingu, hollum mat, hugleiðslu og friðsælli tilveru,“ bætir hún við.
Sýningin í Listagjánni verður opin á sama tíma og Bókasafnið frá 9-18 á virkum dögum og frá 10-14 á laugardögum. Verið öll hjartanlega velkomin.