Jólin kvödd á Selfossi

Þrettándagleði á Selfossi. Mynd úr safni. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Jólin verða kvödd á Selfossi með glæsilegri þrettándagleði laugardaginn 6. janúar. Gleðin verður með hefðbundnu sniði og sér Ungmennafélag Selfoss um framkvæmdina.

Að vanda verður farin blysför frá Tryggvaskála kl. 20:00 að brennustæði á tjaldstæði Gesthúsa þar sem kveikt verður í þrettándabálkesti. Jólasveinarnir kveðja og álfar og tröll mæta á svæðið. Þá verður glæsileg flugeldasýning í umsjón Ungmennafélagsins með stuðningi Björgunarfélags Árborgar.

Í tilkynningu frá Ungmennafélagi Selfoss eru bæjarbúar hvattir til að láta sjá sig í trölla-, álfa eða jólasveinabúningum.

Þeim sem taka þátt í blysförinni er bent á bílastæði við ráðhúsið, Krónuna og Hótel Selfoss. Nokkur bílastæði eru við Austurveg en á leið göngunnar að brennustæðinu er nokkur fjöldi góðra bílastæða við leikskólann Álfheima og Vallaskóla, við Sundhöll Selfoss og Fjölheima.

Vegna blysfararinnar lokast Engjavegur frá Reynivöllum að Rauðholti og er fólki bent á að leggja í nálæg bílastæði. Má nefna að mikill fjöldi bílastæða er við íþróttahúsið Iðu og
Fjölbrautaskóla Suðurlands auk góðra bílastæða við leikskólann Hulduheima. Þá eru og bílastæði við Selið en eins og áður segir er mælst til þess að bílum sé ekki lagt við Engjaveg á milli Reynivalla og Rauðholts.

Þar sem fjöldi ungra barna sækir þrettándagleðina er þeim tilmælum beint til fólks að vera ekki með flugelda nærri blysförinni eða við brennuna.

Fyrri greinAthugull starfsmaður kom í veg fyrir stórtjón
Næsta greinFyrstu sjúkraflutningar ársins í Landeyjahöfn