Jólasveinarnir mæta á jólatorgið á Selfossi

Í dag munu jólasveinarnir úr Ingólfsfjalli koma til byggða og heilsa upp á Selfyssinga og nærsveitunga á jólatorginu í Sigtúnsgarðinum.

Dagskráin hefst kl. 15:30 en þá syngur m.a. Karlakór Selfoss og formaður bæjarráðs Árborgar, Eyþór Arnalds, flytur ávarp.

Um kl. 16:00 koma síðan jólasveinarnir í garðinn. Þá verður sungið og trallað og gengið í kringum jólatréð. Vonast sveinarnir til að sem flestir komi og taki þátt í gleðinni og klæðist jólasveinabúningum eða jólasveinahúfum. Boðið verður upp á frítt kakó á jólatorginu.

Ungmennafélag Selfoss mun aðstoða jólasveinana fyrir þessi jól eins og áður og verður þeim innan handar með allt sem snýr að jólasveinamálum. Má þar nefna að taka niður pantanir á jólaböll eða heimsóknir og einnig pakkaþjónustuna, en jólasveinarnir hafa lengi séð um að bera út pakka á aðfangadagsmorgun milli kl. 10:00-13:00.

Tekið er á móti litlum pökkum í félagsheimilinu Tíbrá á Þorláksmessu kl. 18:00-21:00. Nánari upplýsingar og pantanir eru í síma 894-5070 eða í netfanginu umfs@umfs.is.

Fyrri greinÓdýrast að æfa fimleika og handbolta á Selfossi
Næsta greinKartafla í skóinn hjá Hamarsmönnum