Jólastund í Skálholti og á Selfossi

Karlakór Selfoss í Skálholtskirkju. Ljósmynd/Laufey Ósk - Stúdíó Stund

Karlakór Selfoss heldur sína árlegu jólatónleika í Skálholti í kvöld, mánudaginn 12. desember og í Selfosskirkju mánudaginn 19. desember.

Jólatónleikar Karlakórs Selfoss eru ómissandi viðburður í jólaundirbúningi margra Sunnlendinga, efnisskráin er fjölbreytt og má þar finna ýmiskonar léttmeti ásamt hátíðlegum söng. Eitthvað sem kemur öllum í jólaskapið.

Stjórnandi Karlakórs Selfoss er Skarphéðinn Þór Hjartarson og hefur hann útsett mörg þeirra laga sem á efnisskránni eru. Píanóleikari kórsins er Jón Bjarnason.

Báðir tónleikarnir hefjast klukkan 20. Aðgangur er ókeypis en tekið er á móti frjálsum framlögum sem renna óskipt í Sjóðinn góða. Posi verður á staðnum á báðum tónleikunum.

Fyrri greinJólaappdagatal Nettó slær í gegn
Næsta greinHjörvar Steinn Íslandsmeistari í atskák