Huglæg rými í listasafninu

Fyrsta sýning ársins í Listasafni Árnesinga verður opnuð laugardaginn 12. janúar kl. 15. Það er innsetning eftir Ólaf Svein Gíslason sem ber heitið Huglæg rými og samanstendur hún af kvikmynd sem varpað er á sex fleti sýningarrýmisins, vatnslitaverkum, litlum skúlptúrum og milliveggjum sem á áhugaverðan hátt mynda eitt verk sem Ólafur sviðsetur í þrjá meginsali safnsins sem og í anddyrið.

Ólafur hefur unnið að þessu verkefni um nokkurra ára skeið og líkt og fyrri verk hans er það samfélagstengt. Verkið var fyrst kynnt á OPNUN sem var sýning í Gallerý Kling & Bang þegar Marshall húsið var formlega opnað 2017 en undanfari sýningarinnar var sjónvarpsþáttaröð á RÚV sem helguð var íslenskri samtímalist þar sem gefin var innsýn í list, sýn og hugmyndafræði 12 myndlistarmanna og var Ólafur valinn í þann hóp.

Uppspretta verksins Huglæg rými eru viðræður Ólafs við nágranna sinn í Flóanum, Sigurð Guðmundsson á Sviðugörðum, kynni Ólafs af því hvernig hann er samvaxinn sögu staðarins og tengsl hans við mótun býlisins; húsin, skepnur og jörðina. Handrit kvikmyndarinnar byggist á viðtölum við Sigurð, en Ólafur lætur fimm einstaklinga segja frá sem Sigurður. Þeir eru auk Sigurðar sjálfs, einn lærður leikari, Þór Tulinius, og þrír sveitungar, ungur piltur, ungur maður og kona, sem eru Ágúst Þorsteinsson, Guðjón Helgi Ólafsson og Kristín Ólafsdóttir.

„Verk Ólafs vekja upp spurningar um rými listarinnar og listaverksins“
Í grein Margrétar Elísabetar Ólafsdóttir í sýningarskrá sýningarinnar Huglæg rými segir í upphafi og niðurlagi: „Verk Ólafs vekja upp spurningar um rými listarinnar og listaverksins, og þátt listamanns og annarra í sköpun þessa rýmis. … Huglæg rými dregur allt í senn upp mynd af sögu einstaklings og sögu samfélags, sem jafnframt er saga af tíma, tímabilum og stað.“

Ólafur Sveinn Gíslason lauk námi við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1983 og Hochschule für bildende Künste í Hamborg 1988. Að námi loknu bjó Ólafur og starfaði við myndlist í Þýskalandi og sýndi reglulega m.a. á Íslandi. Árið 2007 tók hann við stöðu prófessors við myndlistardeild Listaháskóla Íslands og flutti þá aftur heim. Frá árinu 2015 hefur hann verið með vinnustofu á Þúfugörðum í Flóa.

Sýningin, sem er styrkt af Myndlistarsjóði, Myndstefi og Uppbyggingasjóði Suðurlands, mun standa til og með 31. mars. Safnið er opið fimmtudaga – sunnudaga kl. 12-18. Aðgangur að safninu er ókeypis og allir velkomnir – líka á opnun sýningarinnar.

Ólafur S. Gíslason. Ljósmynd/Aðsend
Fyrri greinKveikt í ruslatunnu við ráðhúsið
Næsta greinFSu áfram í Gettu betur