Hringur, kór eldri borgara í Rangárþingi, fagnar 20 ára afmæli sínu með afmælistónleikum sunnudaginn 1. nóvember kl. 14:30 í Hátíðarsal Grunnskólans á Hellu.
Á tónleikunum kemur Hringur fram ásamt Vinum Jenna og Sigurði Matthíasi Sigurðarsyni einsöngvara. Guðjón Halldór Óskarsson leikur á píanó og stjórnandi kórsins er Kristín Sigfúsdóttir.
Í tilefni afmælisins verður einnig frumsýnt hljóð- og myndband með efni frá starfi kórsins á árunum 2019–2026 sem Pétur Einarsson hljóðmaður hefur unnið að. Að tónleikum loknum verður boðið upp á afmæliskaffi í menningarsalnum við Dynskála.
HÖllum velkomið að koma og fagna þessum tímamótum með kórnum en aðgangseyrir er 3.000 krónur.

