Haustgildi um helgina

Pétur Már Guðmundsson. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Uppskeruhátíðin Haustgildi, menning er matarkista verður haldin í þriðja sinn á Stokkseyri núna um helgina.

Eins og felst í orðinu, þá fagnar Haustgildi haustinu og er óður til uppskerunnar í víðri merkingu. Framleiðendur kynna vöru sína, listamenn kynna verk sín og gestir njóta í vinalegu umhverfi Stokkseyrar við ströndina í Árborg.

„Ánægja gesta og þátttakenda í þau skipti sem hátíðin hefur verið haldin, hefur hvatt okkur sem stöndum að Haustgildi til að færa út kvíarnar ögn og fá fleiri til að taka þátt og bjóða fleiri gestum að kynnast hátíðinni og Stokkseyri og ströndinni í Árborg,“ segir Pétur Már Guðmundsson, einn af aðstandendum hátíðarinnar, í samtali við sunnlenska.is.

„Þeir framleiðendur sem taka þátt í ár eru Sólheimar, Smiðjan brugghús, Korngrís, Arabær, Eyrarfiskur, Sápufólkið, Goðanes grafinn þorskur, Pönnukökuvagninn með sultur, Jörth, Kartöfluostar Live Food og kartöflur frá Búð 2 í Þykkvabæ. Þá verður kvenfélagið á Stokkseyri einnig þátttakandi með loppumarkað og fiskisúpu á boðstólnum.“

Ljósmynd/Aðsend

Eitthvað fyrir öll skilningarvitin
Sem fyrr segir er Haustgildi ekki bara uppskeruhátíð fyrir grænmeti heldur líka fyrir alls konar annað sem fólk hefur verið að vinna að. „Ein af aðal áherslunum á Haustgildi er að tefla saman framleiðendum af þessu tagi í bland við menningarviðburði. Í ár verður viðburðadagskráin sannarlega safarík og við erum mjög þakklát fyrir hversu margir hafa séð sér fært að taka þátt.“

Fjölmargir rithöfundar koma fram á Haustgildi. „Þeir rithöfundar sem taka þátt eru Ófeigur Sigurðsson, Harpa Rún Kristjánsdóttir, Hlín Agnarsdóttir. Sandra B. Clausen, lesið verður uppúr nýrri bók eftir Einar Má Guðmundsson, Natalía Stolyarova, Þórdís Þúfa, Gunnar Theodór Eggertsson, Sigtryggur Baldvinsson og Bjarni Þór Pétursson. Verk þessara höfunda verða til sölu á bókamarkaði Sigvalda í bland við eldri bækur.“

Ljósmynd/Harpa Rún Kristjánsdóttir

Tónleikar í kirkjunni
Fjöldinn allur af tónlistarmönnum kemur fram á hátíðinni í ár. „Stærsti viðburðurinn á Haustgildi í ár eru tónleikar í Stokkseyrarkirkju á laugardagskvöldið þar sem Krummi Björgvinsson spilar ásamt hljómsveit efni af væntanlegri plötu sem hann hefur verið að vinna að.“

„Fleiri tónlistamenn koma fram líka en þau eru Ragnar Ólafsson úr Árstíðum, Freysteinn Gíslason kontrabassaleikari ásamt Helga R. Heiðarssyni á tenórsaxafón og Óskari Kjartanssyni á trommur og Eyjólfur Eyjólfsson söngvari og langspilssmiður.“

„Lokatónleikar Haustgildis verða á Brimrót í gamla félagsheimilinu Gimli á Stokkseyri á sunnudaginn frá 17-18 en þar koma fram Stokkseyringarnir Júlíus Óttar og Kristín Björk Kristjánsdóttir, líka þekkt sem Kira Kira. Það má síðast en ekki síst taka fram að hátíðin í ár fer að mestu fram í og kringum Orgelsmiðjuna á Stokkseyri, bryggjumegin við Menningarverstöðina eða gamla frystihúsið á Stokkseyri. Allar frekari upplýsingar er að finna á haustgildi.is,“ segir Pétur að lokum.

Haustgildi á Facebook

Fyrri greinSamið um uppskiptingu Alviðru og Öndverðarness II
Næsta greinEldur í bíl á gámasvæðinu