Góð aðsókn og áhugi á málþingi um biskupsfrúrnar

Í Skálholtskirkju. Mynd úr safni.

Góð skráning er þegar orðin á málþing Hildar Hákonardóttur og Skálholts um biskupsfrúr fyrri alda og hefur fyrirlesturinn verið færður í Skálholtsdómkirkju vegna fjöldans.

Allar sjö biskupsfrúr okkar daga mæta á málþingið en það eru Ebba Sigurðardóttir, Matthildur Jónsdóttir, Margrét Sigtryggsdóttir, Arndís Jónsdóttir, Kristín Guðjónsdóttir, Margrét Bóasdóttir og Guðrún Helga Bjarnadóttir.

Málþingið er haldið á morgun, laugardaginn 19. júní og hefst kl. 10. Nítjándi júní er jafnan nefndur kvenréttindadagurinn í tilefni þess að 19. júní 1915 öðluðust konur fyrsta kosningarétt með breytingu á stjórnarskrá Íslands.

Margar áhrifamiklar konur koma við sögu á málþinginu og eru þær konur í forgrunni sem Hildur Hákonardóttir hefur fjallað um í bókum sínum „Hvað er svona merkilegt við það að vera biskupsfrú?“ Síðara bindi þessara bóka kom nýverið út og hafa þær vakið athygli fyrir margt en ekki síst þann frásagnarstíl og aðferðir Hildar í samtölum hennar við þessar sögulegu konur. Hildur flytur aðal erindið á málþinginu og svo munu þær Þórunn Valdimarsdóttir, Unnur Jökulsdóttir og sr. María Ágústsdóttir bregðast við með stuttu innleggi. Eftir hádegi verða umræður, fyrirspurnir og samtal um áhrif þessara kvenna, hverrar og einnar, í sögu kirkju og þjóðar.

Eins og sunnlenska.is hefur greint frá verður Ragnheiðarganga í Skálholti með Friðriki Erlingssyni rithöfundi í dag og hefst hún klukkan þrjú. Hægt er að skrá sig á málþingið og í Ragnheiðargönguna á samnefndum viðburðarsíðum á vefnum skalholt.is.

Fyrri greinÍslandsmótið í holukeppni í Þorlákshöfn um helgina
Næsta greinMikill viðbúnaður við Þingvallavatn