Út var að koma hjá Bókaútgáfunni Hólum barnabókin Ævintýraheimur íslenskra fugla 2. Sigurður Ægisson er höfundur textans en indónesíska listakonan Ratih Dewanti teiknaði myndirnar; hún er jafnframt líffræðingur að mennt. Hér er örlítið sýnishorn og tekinn fyrir fugl sem talar íslensku!
Jaðrakan
Jaðrakaninn er kúnstugur. Í gömlum heimildum segir, að enginn fugl hafi marg breyttara kvak, „og tali hann 9 tungur“. Hann á varpheimkynni á Íslandi, á nokkrum stöðum í Evrópu og um miðbik Asíu, allt austur að Kamtsjatkaskaga. Margir halda að jaðrakaninn sé tiltölulega nýr landnemi hér, en það er ekki rétt, fuglinn hefur um aldir verið í Árnes- og Rangárvallasýslum. En, að talið er vegna loftslagsbreytinga upp úr 1920, fór hann svo að dreifast út fyrir það svæði, fyrst til Kjósarsýslu og Borgarfjarðarsýslu, á árunum 1920–1930. Um 1940 er talið að jaðrakanar hafi verpt í Skagafjarðarsýslu og í kringum 1950 í Snæfells- og Hnappadalssýslu, um 1963 við Mývatn, og upp úr 1970 á Héraði. Nú er tegundin komin um landið allt.
Íslenski jaðrakaninn er eindreginn farfugl sem kemur til landsins í seinni hluta aprílmánaðar. Hreiðrinu, sem að mestu er ófóðruð laut ofan í þúfnakolli, er valinn staður í grónum mýrum, flóum með þurrum blettum í, röku graslendi og jafnvel blautu kjarrlendi. Eggin eru yfirleitt 3–4 talsins, örsjaldan fimm. Þau eru græn eða dökkbrún að grunnlit, alsett svarbrúnum doppum og flekkjum, litlum og stórum. Báðir hinir verðandi foreldrar sjá um að liggja á þeim. Útungunartíminn er 22–24 dagar og ungarnir verða fleygir 25–35 daga gamlir.
Ungfuglar eru rauðmóleitir á hálsi og bringu.
Aðalfæða hinna fullorðnu er ánamaðkar, burstaormar, skordýralirfur og vatnabobbar.
Í september eru flestir jaðrakanar horfnir af landi brott. Vetrarheimkynni þeirra eru aðallega í Vestur-Evrópu, sérstaklega á Bretlandseyjum, Atlantshafs- og Ermarsundsströnd Frakklands, helstu árósum á Spáni og í Portúgal og allt suður til Marokkó.
Jaðrakaninn kemur víða fyrir í þjóðtrúnni, einkum vegna raddarinnar. Áður fyrr þóttust menn jafnvel greina orð úr hljóðum fuglsins eða þaðan af meira, jafn vel hvort ár væru færar eða ófærar, því að ef hann sagði: „Vadd’ ekki, vadd’ ekki“, þá var áin ófær, en ef hann sagði: „Vættu þig, vættu þig,“ þá var áin fær og allt í lagi að vaða hana. Hann kunni sumsé að tala íslensku.

Skógarþröstur
Líklega þekkja flest börn hér á landi skógarþröstinn, þennan áberandi og duglega, fiðraða vin, sem gleður augu okkar og eyru hvert vor og sumar með líflegu atferli sínu. Hann tilheyrir spörfuglum, eins og auðnutittlingurinn, snjótittlingurinn og þúfutittlingurinn og fleiri — já, og meira að segja krummi, sem er þeirra langstærstur.
Skógarþrösturinn á varpheimkynni um norðanverða Evrópu og Asíu, nánar tiltekið allt frá Íslandi og Færeyjum, um Bretlandseyjar, og þaðan frá Skandinavíu og langleiðina að Kyrrahafi. Vetrarheimkynnin eru í Suður- og Vestur-Evrópu, í Norðvestur-Afríku og í Litlu-Asíu og þar austur og norður af.
Hann er að mestu leyti farfugl og er þegar byrjaður að sjást hér í lok mars, einkum fyrir austan og sunnan, en meginparturinn kemur þó ekki fyrr en í apríl. Fyrst eftir heimkomuna eru fuglarnir gjarnan á vappi nærri sjó eða mannabústöðum, enda er þar helst æti að finna á þeim árstíma, en þegar líða tekur á apríl fara þeir að dreifast. Skógarþrösturinn er annars útbreiddur um allt land, en þó algengastur í birkiskógum, einkum ef þar er að finna ríkulegan botngróður. Hann kann þó einnig bærilega við sig í lágvaxnara kjarri.
Varpið hefst í maí. Eggin geta verið 3–7 að tölu, en eru oftast 4–6. Þau eru blágræn að lit, alsett smágerðum, rauðbrúnum dílum. Útungun tekur 10–14 daga og sér hin verðandi móðir ein um þá hlið mála, en karlfuglinn á það til að gæta hreiðursins, án þess samt að taka beint við álegunni, þurfi kvenfuglinn að bregða sér frá. Ungarnir koma hálfnaktir og ósjálfbjarga úr eggjum, en þeir vaxa hratt. Báðir foreldrar afla þeim fæðu eftir ábrot. Þeir verða fleygir á 8–13 dögum, en eru samt ennþá háðir foreldrum sínum um mat næstu daga. Þeir fá ekki hinn ein kennandi, rauðgula blett á hliðarnar fyrr en síðsumars.
Skógarþrösturinn nærist einkum á bjöllum, ánamöðkum, áttfætlum og skordýralirfum, á meðan þeirra nýtur við. Þegar tekur að hausta leita fuglarnir í berjamó og eru líka töluvert í kringum sveitabæi; í grýttar fjörur safnast þeir aðallega í hrakningum.
Í október og nóvember taka þeir sem ætla í farflug stefnu til vetrarheimkynnanna, en hinir, sem hafa ákveðið að verða eftir, halda inn í þéttbýlið. Þeir sem fara utan dvelja á veturna á Írlandi og í Skotlandi og einnig í Vestur-Frakklandi, í Portúgal og á Spáni, eins og hluti meginlandsstofnanna. Þeir eru samt ekki alveg staðbundnir á þessum vetrarstöðvum, heldur reika um, eftir fæðu framboði og veðurfari.
Íslensk þjóðtrú er fáorð um skógarþröstinn. Þó vilja sumir meina að af ýmsu í fari hans megi lesa veðurspá.
Þetta er jafnframt fuglinn sem Jónas Hallgrímsson, skáld og náttúrufræðingur, kallaði „vorboðann ljúfa“, í kvæði sínu, „Ég bið að heilsa“ eða „Nú andar suðrið“.
Tjaldur
Íslenski tjaldurinn er að mestu leyti farfugl sem kemur hingað til lands gjarnan í mars og byrjun apríl. Á vorin og sumrin er hann einkennisfugl mikils hluta af ströndum Íslands, en er einnig að finna inn til landsins; hann sést jafnvel í þéttbýli. Varptíminn hefst seint í apríl eða í byrjun maí og er hreiðrið ekki nema örlítil dæld sem fuglarnir búa til með því að nudda kviðnum við sand eða möl eða annan hentugan jarðveg. Oft er um nokkrar hreiðurskálar að ræða, en kvenfuglinn svo látinn um að velja þá bestu; hún er síðan fóðruð með nokkrum skeljabrotum eða völum. Eggin eru oftast þrjú en geta verið 1–4 og jafnvel fimm, sem þó mun heyra til undantekninga. Þau eru grá eða ljósbrún, alsett svörtum dröfnum. Álega hefst um leið og öll eggin eru komin og sjá báðir hinir verðandi foreldrar um þá hlið mála. Útungunartíminn er 21–27 dagar. Ólíkt því sem gerist hjá flestum öðrum tegundum vaðfugla eru nýfæddir ungarnir, sem eru hreiðurfælnir, mataðir af foreldrunum í 7–10 daga. Talið er að sérstæð fæða tjaldsins ráði hér mestu um. Við sjávarsíðuna lifir hann mikið á sandmaðki og öðrum burstaormum, krabba dýrum og ýmsum skeldýrum, einkum þó kræklingi og hjartaskel. Inn til landsins eru hins vegar ánamaðkar og skordýr þýðingarmesta fæðan. Ungarnir verða fleygir 28–35 daga gamlir og sjálfstæðir litlu þar á eftir. Sá þáttur getur reyndar dregist uns þeir eru orðnir 26 vikna gamlir.
Bróðurpartur íslenska stofnsins yfirgefur landið á veturna og dvelur á fjörusvæðum Vestur-Evrópu. Töluverður hópur, eða um 30%, verður þó eftir, aðallega á Suðvestur- og Vesturlandi.
Tjaldurinn er ekki félagslyndur á varptíma en um leið og eggtíð sleppir kveður við annan tón.
Í maí árið 1927 birtist í tímaritinu 19. júní eftirfarandi grein eftir Ólínu Andrésdóttur:
Það er eitt orð í okkar kæra og fagra móðurmáli, sem ég held að hljómi fegurst í sálum okkar að undanteknu orðinu: móðir. Þetta litla orð er: Vor, sem hefur í för með sér hina dásamlegu þrenning: líf, ljós og yl. En þau eru ekki allstaðar jafnfögur vorin; ég hefi ekki víða verið né farið, og veit því ekki um fegurð þeirra í ókunnum héruðum, en þar sem ég hefi dvalið, er fegurð þeirra sitt með hverju móti. Ég hefi séð fegurst vor í Vestureyjum á Breiðafirði, mér finnst þau hvergi muni vera fegurri og ef ég ætti að lýsa þeim í einni setningu myndi ég segja: Þau eru eilíf vaka og söngur.
Hinn fyrsti vorboði, sem þangað kemur er tjaldurinn, hann kemur um og fyrir sumarmál, eftir því hve snemma vorar. Þá er það einn góðan veðurdag, að börnin koma inn með miklum asa og fögnuði, og segja að tjaldurinn sé kominn.
Í æsku minni stökk alt unga fólkið þá upp, eins og stutt væri á fjöður í hjarta þess, og út var hlaupið. Þá sáum við þennan hraðfleyga, fagra og elskulega fugl, snúast eins og snarkringlu yfir höfðum okkar, undir hinum dýrlega heiðbláa vorhimni, og heyrðum hann endurtaka sí og æ: „Blítt, blítt.“
Já, vorið var sannarlega komið, það heyrðum við og sáum, og sá krakkinn, sem best gat sungið, byrjaði þá umsvifalaust: „Vorið er komið og grundirnar gróa“, og að vísunni lokinni hljóp hver til sinnar vinnu.

