Það er ekki á hverjum degi sem bremsuviðgerð á Ferrari leiðir til Óskarsverðlauna, en þannig hófst samstarfið á bak við eitt frægasta ástarlag níunda áratugarins, Take My Breath Away úr kvikmyndinni Top Gun.
Hr. Eydís og Erna Hrönn hafa nú sent frá sér nýja ábreiðu af laginu á YouTube-rás hljómsveitarinnar. Upprunalega lagið kom út árið 1986 í flutningi hljómsveitarinnar Berlin og fagnar því 40 ára afmæli í ár.
Textahöfundurinn Tom Whitlock kynntist tónskáldinu Giorgio Moroder þegar hann bauðst til að gera við bremsurnar á Ferrari-bílnum hans. Úr þessum óvenjulegu kynnum spratt samstarf sem skilaði meðal annars stórsmellunum Danger Zone og Take My Breath Away. Það síðarnefnda færði þeim félögum Óskarsverðlaunin fyrir besta frumsamda kvikmyndalagið árið 1987.
„Top Gun var náttúrulega algjör risasprengja á sínum tíma og Take My Breath Away var alls staðar,“ segir Örlygur Smári, söngvari og gítarleikari Hr. Eydísar. „Þetta er eitt af þessum lögum sem maður þekkir frá fyrstu tónunum og er samstundis kominn aftur inn í myndina Top Gun með Krúsernum. Svo er Erna Hrönn auðvitað algjörlega á heimavelli í svona ballöðum!“
Ábreiðan tengist tónleikadagskrá haustsins hjá Hr. Eydís og Ernu Hrönn, ALVÖRU ’80s PARTÝ – Movie Hits, þar sem stærstu kvikmyndasmellir níunda áratugarins eru í aðalhlutverki.

