Fuglar og flóra við Sogið

Gönguhópur í fræðslugöngu Landverndar stillir sér upp til myndatöku. Ljósmynd/Andrés

Langar þig að skoða og vita meira um villtar jurtir og fugla? Laugardaginn 8. júní frá klukkan 14 til 17 verður boðið upp á spennandi fræðslugöngu frá Alviðru.

Þá munu náttúrufræðingarnir Rannveig Thoroddsen og Einar Þorleifsson leiða létta og skemmtilega fræðslugöngu um Þrastarskóg. Litið verður eftir foldarskarti í skógarbotni og lagt við hlustir eftir fuglasöng á grein eða kvaki á Soginu.

Gangan er létt og hentar allri fjölskyldunni. Hún hefst við Alviðru og að lokinni göngu er boðið upp á kaffi/kakó og kleinur í Alviðru.

Alviðra er í Ölfusi, undir Ingólfsfjalli, sjá hér. Í sumar stendur Alviðra, fræðslusetur Landverndar, fyrir öðrum skemmtilegum og fræðandi viðburðum. Dagskrá sumarsins má skoða hérna.

Fyrri greinTómatar & tangó á Friðheimum
Næsta greinTveir Íslandsmeistaratitlar til Berserkja BJJ