Fjölnismenn og Sigurður Breiðfjörð að Kvoslæk

Óttar Guðmundsson. Ljósmynd/Aðsend

Fjölnismennirnir Konráð Gíslason og Jónas Hallgrímsson deildu harkalega á rímnakveðskap Sigurðar Breiðfjörðs á árunum 1835-1837. Sr. Tómas Sæmundsson á Breiðabólstað var þeim ekki sammála og urðu miklar deilur innan ritstjórnar Fjölnis.

Óttar Guðmundsson, læknir, fjallar um þetta ósamkomulag og áhrif þess á Sigurð Breiðfjörð, Jónas, Tómas og Fjölni á fyrstu Gleðistundinni að Kvoslæk í Fljótshlíð sumarið 2024. Hún verður haldin laugardaginn 15. júní næstkomandi klukkan 15. Kaffiveitingar að loknum fyrirlestrinum.

Fyrri greinLeikskólinn Heklukot 50 ára
Næsta greinUppsveitir unnu Suðurlandsslaginn