Fern verðlaun til nemenda í Hveragerði

(F.v.) Egill Darri Ólafsson, Ólafur Jósefsson, Hróar Ingi Hallsson, Sigurður Grétar Gunnarsson, Eliza Reid, Bryndís Klara Árnadóttir, Dagbjört Fanný Stefánsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Síðastliðinn fimmtudag voru verðlaun veitt í ensku smásagnakeppninni 2021, sem Félag enskukennara á Íslandi (FEKÍ) heldur í tilefni af Evrópska tungumáladeginum þann 26. september.

Grunnskólinn í Hveragerði (GÍH) hefur tekið þátt í landskeppninni samfellt frá árinu 2012 með afbragðs góðum árangri enda er sögugerðin fastur liður í skólastarfinu. Að þessu sinni átti skólinn fjóra vinningshafa, sem fengu viðurkenningar sínar afhentar við hátíðlega athöfn að Bessastöðum. Forsetafrúin Eliza Reid afhenti verðlaunin ásamt stjórn FEKÍ.

Í flokknum 5. bekkur og yngri hlaut Hróar Ingi Hallsson 1. verðlaun og í flokknum 6.-7. bekkur hlaut Bryndís Klara Árnadóttir 3. verðlaun, Sigurður Grétar Gunnarsson hlaut 2. verðlaun og Dagbjört Fanný Stefánsdóttir hlaut 1. verðlaun.

Að sögn Ólafs Jósefssonar, enskukennara í GÍH, hafa aldrei borist jafn margar vandaðar smásögur og nú og sé árangur og þátttaka krakkanna í Hveragerði mikið fagnaðarefni.

Fyrri greinLítið mark tekið á börnum og ungmennum
Næsta greinLátum verkin tala