Draugasaga sem byggir á raunverulegum atburðum

Guðni Reynir Þorbjörnsson. sunnlenska.is/Jóhanna Petersen

Grímsnesingurinn Guðni Reynir Þorbjörnsson hefur gefið út sína aðra bók, Hún er hér. Bókin er sjálfstætt framhald af bókinni Þriðja augað sem kom út í fyrra.

„Þetta er í grunninn draugasaga, en um leið opnast á gömul fjölskylduleyndarmál og glæpi sem hafa verið grafnir í fortíðinni,“ segir Guðni í samtali við sunnlenska.is.

„Hugmyndin kviknaði í kjölfar þess að ég gaf út bókina Þriðja augað í fyrra, en hún fékk mjög góðar undirtektir hjá lesendum. Mig langaði að halda áfram að vinna með aðalpersónuna, Rósu, sem starfar sem miðill.“

Guðni segir að hugmyndin að sögunni hafi komið nokkuð fljótt til hans. „Án þess að segja of mikið frá er fyrri hluti bókarinnar að hluta til byggður á raunverulegum atburðum. Nokkrir kaflar eru innblásnir af því sem gerðist í alvörunni, en þetta er saga sem ég hef lengi viljað segja frá.“

„Ég þurfti svo að sjálfsögðu að skálda söguna í kringum þessa atburði til að láta allt ganga upp. Glæpirnir í bókinni eru því skáldskapur, þótt sagan eigi sér að hluta rætur í raunveruleikanum og uppbygging fyrri hlutans sé að einhverju leyti svipuð því sem gerðist í alvörunni.“

Von á þriðju bókinni
Guðni var í rúmt ár, með hléum, að skrifa bókina. „Ég vissi alveg hvaða sögu ég vildi segja, en upphaflega var hún ansi stutt. Það tók mig því dágóðan tíma að finna út hvernig ég vildi byggja söguna upp í heild sinni og móta hana í þá mynd sem hún er í dag.“

„Ég myndi segja að bókin sé fyrst og fremst ætluð fullorðnum, þótt ungt fólk geti vissulega líka lesið hana. Persónulega finnst mér hún mun mildari en bókin sem kom út í fyrra, en þessi er aftur á móti draugalegri. Ég stefni einnig á að skrifa og gefa út þriðju bókina um Rósu. Mér finnst spennandi að halda áfram að þróa persónuna og sjá hvert sagan leiðir hana næst.“

„Fólk getur haft beint samband við mig til að kaupa bókina, en margir gera það nú þegar. Það er líka einfalt að panta hana í vefverslun Pennans. Hún er líka til í einhverjum búðum þeirra,“ segir Guðni ennfremur.

Fyrri greinFyrirliði KFA í vínrautt