Dagur íslenska fjárhundsins á netinu

Ljósmynd/Aðsend

Sunnudaginn 18. júlí næstkomandi verður Dagur íslenska fjárhundsins haldinn hátíðlegur í sjötta sinn.

Eigendur íslenskra fjárhunda munu að venju koma saman í stærri og smærri hópum og njóta dagsins með ferfættum vinum sínum.

Sú hefð hefur skapast að Árbæjarsafn hefur boðið meðlimum í Deild íslenska fjárhundsins að heimsækja safnið með hunda og setja saman dagskrá til að kynna hundinn, eðli hans og sögu fyrir gestum safnsins. Íslenskir fjárhundar verða í Árbæjarsafninu frá klukkan 13 til 17 á sunnudaginn.

Í ár verður dagskráin að mestu á netinu til að gefa fjölmörgum erlendum unnendum kynsins kost á því að koma að því að gera daginn fræðandi og skemmtilegan.

Dagskránni verður streymt á Facebooksíðunni Dagur íslenska fjárhundsins og byrjar klukkan 13 á sunnudaginn.

Fyrri greinStór stig fyrir Ægi
Næsta greinHalldór Garðar til liðs við Keflavík