Byssusýning Veiðisafnsins um helgina

Byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri, sem í ár verður í samvinnu við verslunina Veiðihornið og Skotgrund – Skotfélag Snæfellsnes verður haldin laugardaginn 18. og sunnudaginn 19. mars frá kl. 11–18 í húsakynnum Veiðisafnsins, Eyrarbraut 49 Stokkseyri.

Ólafur og félagar í Veiðihorninu sýna úrval skotvopna og búnað til skotveiða ásamt sjónaukum og aukabúnaði, til sýnis og sölu. Kynntir verða rifflar frá Remington, Howa og Benelli, haglabyssur frá Fair, Remington, Stoeger, Benelli og Franchi, einnig sjónaukar frá Leoupold, Crimson Trace og Nikko Stirling ásamt hljóðdeyfum frá Stalon, endurhleðsluvörum frá Barnes, Remington, Frankford, Alliant og fl.

Úrval af Snæfellsnesinu
Félagsmenn úr Skotgrund – Skotfélag Snæfellsnes verða með fjölbreytt úrval skotvopna til sýnis ásamt kynningu á starfsemi skotfélagsins. Kennir þar margra grasa og verður úrval skotvopna verður til sýnis, haglabyssur, rifflar, skammbyssur, herrifflar ásamt ýmsu tengdu skotveiðum m.a úr einkasöfnum.

Einnig verða til sýnis skotvopn og munir frá Veiðisafninu og einkaaðilum, má þar nefna skotvopn frá Sigurði Ásgeirssyni, Einari frá Þverá, Sveini Einarssyni frv.veiðistjóra, Sigmari B. Haukssyni, Braga frá Þverá og Drífu-haglabyssur frá Jóni Björnssyni heitnum frá Dalvík og byssur smíðaðar af Jóni Þorsteinsyni frá Ólafsfirði svo eitthvað sé nefnt.

Allt áhugafólk um skotvopn og veiðar er velkomið, aðgangseyrir er kr. 1.750 fyrir fullorðna og 850 kr. fyrir börn 6-12 ára.

Fyrri grein„Það var á við góðan Suðurlandsskjálfta“
Næsta greinÍvan Breki framlengir til þriggja ára