Boðskapur Kærleikslagsins er mjög viðeigandi í dag

Tónlistarkonan Gísella Hannesdóttir frá Arnkötlustöðum í Holtum sendi frá sér sitt fyrsta lag í síðustu viku, Kærleikslagið, og er það komið á allar helstu streymisveitur.

„Lagið hefur verið lengi í vinnslu og er loksins komið út í aðdraganda og tilefni af degi gegn einelti sem er þann 8. nóvember næstkomandi,“ segir Gísella. Hún segir boðskap lagsins vera skýran en það fjallar um mikilvægi þess að vera góð við hvert annað, fagna fjölbreytileikanum og dreifa gleði og ást.

„Tilurð og útgáfa lagsins hefur mikla persónulega þýðingu fyrir mig en boðskapurinn er einnig mjög viðeigandi í ljósi ástandsins í samfélaginu og heiminum. Aukinn einmanaleiki, hatursorðræða og vanlíðan meðal ungs fólks er á allra vörum en lítið verið að bregðast við með beinum og kröftugum aðgerðum,“ segir Gísella og bætir við að hún hafi mikla trú á mætti listarinnar.

Gísella Hannesdóttir. Ljósmynd/Aðsend

„Ég vona að Kærleikslagið geti meðal annars nýst í forvarnaskyni í skólum landsins við að hefja jákvætt og lausnamiðað samtal um jákvæð samskipti, inngildingu og virðingu. Markmiðið er að dreifa laginu og skilaboðum þess sem víðast, ekki síst meðal barna og ungs fólks,“ segir Gísella að lokum.

Fyrri greinOK heldur Tæknidag á Selfossi