Afmælishátíð Konubókarstofu um helgina

Hátíðin hófst um síðustu helgi með rappnámskeiði með Steinunni og Röggu frá Reykjavíkurdætrum. Ljósmynd/Aðsend

Um síðustu helgi hófst bókmenntahátíðin Máttugar meyjar á Eyrarbakka en hátíðin er haldin í tilefni af 10 ára afmæli Konubókarstofu.

Hátíðin hófst á vel heppnuðu rappnámskeiði með Steinunni og Röggu úr Reykjavíkurdætrum og í gær var haldin handavinnustund á meðan höfundar lásu úr verkum sínum.

Bókmenntahátíðin nær síðan hápunkti um helgina en á laugardag verður boðið upp á ritsmiðju fyrir börn, fjölskyldujóga, listsýningu, konukvöld í Rauða húsinu og samtal við rithöfunda. Að lokum verður gestum boðið til afmælisveislu með veglegum veitingum.

Nánari upplýsingar um dagskrána eru hér að neðan.

Í Konubókarstofu. Mynd úr safni.

Ritsmiðja barna og fjölskyldu jóga
Laugardaginn 22. apríl kl. 14 verður ritsmiðja fyrir börn á aldrinum 8-14 ára í Skrúfunni. Linda Ólafsdóttir teiknari, málari og rithöfundur stýrir ritsmiðju fyrir börn. “Í þessari smiðju munum við skapa sögu út frá hugmyndaleikjum. Þátttakendur smiðjunnar geta valið að annað hvort teikna eða skrifa stutta sögu eða vinna með hvoru tveggja. Við vinnum með hugmyndir um jafnrétti, samvinnu, gleði og glens.”

Eftir það, klukkan 16, verður fjölskyldujóga í umsjón Evu Daggar Atladóttur í Gömlu kartöflugeymslunni. Eva Dögg Atladóttir hefur lært hatha yoga úti á Indlandi í Sivananda Yoga Centre en Swami Sivananda var læknir sem kenndi helstu yoga stöðurnar til að hafa fullkomna heilsu. Eva Dögg ætlar að kenna þessar stöður og fræða okkur um þær, jafnframt því að kynna nokkrar yoga bækur og fá nemendur efni úr þeim. Djúp slökun og möntrusöngur í lokin.

Listaverk í Rauða Húsinu
Listaverk eftir Heru Fjord mun vera til sýnis í Rauða Húsinu laugardag og sunnudag.

Frá ljóðadagskrá Konubókarstofu árið 2018. Ljósmynd/Aðsend

Leyndardómar yndisþokkans
Laugardeginum líkur með konukvöldi í Rauða Húsinu klukkan 19:30. Þar verður höfðað til yngri kvenna með ýmsum hætti. Sæbjörg Eva Hlynsdóttir sér um tónlistaratriði. Spunahópurinn Eldklárar og eftirsóttar treður upp og kynnir meðal annars væntanlega ljóðabók sína. Heiða Vigdís Sigfúsdóttir les úr bók sinni Getnaði. Hallgerður Freyja Þorvaldsdóttir mun lesa upp úr bók sem var skrifuð til að kenna ungum konum að koma fram og fleira. Eva Katrín kynnir Eva´s Breath og ýmislegt fleira. Miðasala er á tix.is og fordrykkur, gjafapoki og léttar veitingar eru innifalin í miðaverðinu.

Hannah Kent og afmælishátíðin
Á sunnudeginum 22. apríl klukkan 14 verður gestum boðið til samtals við rithöfundana Hönnuh Kent og Þórunni Valdimarsdóttur í Rauða Húsinu. Fjallað verður um verk þeirra í opnu samtali, sameiginlega snertifleti og opnað fyrir spurningar úr sal. Viðburðurinn er hluti af Bókmenntahátíð í Reykjavík.

Þá mun sagnfræðingurinn Dalrún Kaldakvísl fjalla um doktorsrannsókn sína á ráðskonum í sveit á síðari hluta 20. aldar. Meginheimildir rannsóknarinnar eru viðtöl sem Dalrún tók við 41 fyrrum ráðskonu. Í erindi sínu beinir hún sjónum að félagslegri stöðu ráðskvenna í sveit, með því að reifa ýmsa þætti sem einkenndu stöðu ráðskvenna, bæði áður en þær réðu sig til starfa sem ráðskonur sem og á meðan ráðskonuvist þeirra stóð. Það hefur hallað mikið á konur í Íslandssögunni og því hefur Dalrún sérstaklega beitt sér fyrir því að taka sagnfræðiviðtöl sem hverfast um líf kvenna.

Uppbyggingasjóður Suðurlands styrkir hátíðina.

Fyrri greinSamráðsfundur um sjálfbæra þróun
Næsta greinSveitarfélag með þröng fjárráð