Vestri reyndist sýnd veiði en ekki gefin

Ljósmynd/Aðsend

Hamar tók í kvöld á móti Vestra í úrvalsdeild karla í blaki. Hamar var fyrir leikinn í efsta sæti deildarinnar með fullt hús stiga eftir fimm umferðir og Vestri í 4. sæti.

Vestramenn eru þó sýnd veiði en ekki gefin því dagsformið á liðinu hefur verið frekar misjafnt hingað til.

Hamar vann fyrstu hrinuna örugglega 25-14. Önnur hrina var jöfn og spennandi og liðin skiptust á að hafa forystuna. Jafnt var í stöðunni 20-20 en þá settu Hamarsmenn í 5. gír og unnu hrinuna að lokum 25-21.

Þriðja hrina var einnig jöfn og spennandi. Hamarsmenn voru þó með frumkvæðið framan af en Vestri náði forystunni undir lokin, 25-24 og 26-25. Þrátt fyrir mikla baráttu heimamanna hafði Vestri sigur að lokum eftir upphækkun, 31-29.

Í fjórðu hrinu var aftur á móti ljóst að Hamarsmenn ætluðu ekki í oddahrinu. Þeir voru með frumkvæðið alla hrinuna og unnu hana að lokum örugglega 25-16 og leikinn 3-1.

Stigahæstir í liði Hamars voru Tamas Magyar og Tomek Leik með 17 stig en í Vestra var það Marcin Grasza með 16 stig.

Fyrri greinStórsigur Selfoss gegn úrvalsdeildarliðinu
Næsta greinHeimkaup um allt land með Dropp