Tómas Valur efnilegasti leikmaður deildarinnar

Tómas Valur ásamt Guðbjörgu Norðfjörð, formanni KKÍ. Ljósmynd/KKÍ

Ölfusingar rökuðu inn verðlaunum á lokahófi Körfuknattleikssambands Íslands sem haldið var í síðustu viku. Tómas Valur Þrastarson var valinn efnilegasti leikmaður úrvalsdeildar karla og Emma Hrönn Hákonardóttir besti leikmaður 1. deildar kvenna.

Auk þess að vera valinn efnilegastur þá var Tómas Valur valinn í fimm manna úrvalslið úrvalsdeildarinnar.

Emma Hrönn var í úrvalsliði 1. deildar kvenna og var sem fyrr segir valin leikmaður ársins, Aniya Thomas var útnefnd besti erlendi leikmaðurinn og Hákon Hjartarson, þjálfari Hamars/Þórs var valinn þjálfari ársins í 1. deildinni.

Emma Hrönn Hákonardóttir og Guðbjörg Norðfjörð. Ljósmynd/KKÍ
Hákon Hjartarson og Guðbjörg Norðfjörð. Ljósmynd/KKÍ
Fyrri greinGular og appelsínugular viðvaranir í vikunni
Næsta greinSumarlestur alla fimmtudaga í júní