Þriðji sigur Ægis í röð

Nenad Zivanovic, þjálfari Ægis. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Ægismenn unnu góðan sigur á KFK í B-deild deildarbikars karla í knattspyrnu í Fagralundi í Kópavogi í kvöld.

Sigurður Hrannar Þorsteinsson kom Ægi yfir á 20. mínútu og það var eina mark fyrri hálfleiksins.

Seinni hálfleikurinn var markalaus allt þar til átta mínútur lifðu leiks að Emil Ásgeir Emilsson tvöfaldaði forystu Ægis og tryggði þeim 0-2 sigur.

Þetta var þriðji sigur Ægis í röð í deildarbikarnum en liðið er í 3. sæti riðils-3 með 9 stig, eins og Kári og KFG en Káramenn eiga leik til góða.

Fyrri greinSvöruðu fyrir sig eftir slæma byrjun
Næsta greinSelfoss gaf eftir í seinni hálfleik