Þór vann Suðurlandsslaginn

Djordje Dzeletovic rífur byssurnar úr slíðrinu eftir glæsilegan þrist. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Það var boðið upp á alvöru leik þegar Selfoss tók á móti Þór Þorlákshöfn í 1. deild karla í körfubolta á Selfossi í kvöld. Þessari fyrstu viðureign sunnlensku félaganna á Íslandsmótinu lauk með sigri Þórs, 100-107.

Þórsarar byrjuðu betur, komust í 12-20 og staðan var 17-25 eftir 1. leikhluta. Það var alvöru keyrsla í 2. leikhluta, Selfoss minnkaði muninn í 30-31 en Þórsarar stigu þá á bensíngjöfina og leiddu 44-52 í hálfleik.

Gestirnir úr Þorlákshöfn byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti og kláruðu leikinn nánast þar. Þór komst í 50-70 og í upphafi 4. leikhluta var staðan 69-82. En Selfyssingar játuðu sig ekki sigraða, þeir áttu frábæran sprett í kjölfarið og minnkuðu muninn í 94-98 þegar rúmar tvær mínútur voru eftir. En Þórsarar héldu haus, stoppuðu blæðinguna og tryggðu sér góðan sigur.

Avery Sullivan var atkvæðamestur hjá Selfyssingum með 26 stig og 11 fráköst en besti maður vallarins var Þórsarinn Djordje Dzeletovic sem skoraði 35 stig og tók 12 fráköst.

Þórsarar eru í 3. sæti deildarinnar með 8 stig en Selfoss er í 7. sæti með 4 stig.

Selfoss-Þór Þ. 100-107 (17-25, 27-27, 25-28, 31-27)
Tölfræði Selfoss: Avery Sullivan 26/11 fráköst/5 stoðsendingar, Aristote Bissokot 22/9 fráköst, Tristan Máni Morthens 17/4 fráköst, Sigurður Darri Magnússon 9, Halldór Benjamín Halldórsson 8/6 fráköst/8 stoðsendingar, Fjölnir Morthens 7, Óðinn Freyr Árnason 6, Gísli Steinn Hjaltason 3, Logi Smárason 2.
Tölfræði Þórs: Djordje Dzeletovic 35/12 fráköst, Joey Holifield 17, Halldór Garðar Hermannsson 15/8 stoðsendingar, Jovan Sljivancanin 13/6 fráköst, Skarphéðinn Árni Þorbergsson 12, Sigvaldi Eggertsson 8/6 fráköst, Ísak Júlíus Perdue 7/5 stoðsendingar.

Fyrri greinHnífjafnt í Breiðholtinu