Sýndu einstaka þrautseigju við erfiðar aðstæður

Fulltrúar Hamars sem tóku við viðurkenningunni (f.v.) Sara Margrét Hammer, Unnar Magnússon og Eydís Valgerður Valgarðsdóttir.

Knattspyrnudeild Hamars í Hveragerði hlaut í dag verðlaunin Grasrótarfélag ársins hjá Knattspyrnusambandi Íslands. Verðlaunin hlýtur Hamar fyrir þrautseigju í starfi yngri flokka við erfiðar aðstæður.

í dag, 22. febrúar, er nákvæmlega eitt ár síðan íþróttasamfélagið í Hveragerði varð fyrir því áfalli að Hamarshöllin eyðilagðist í óveðri. Þetta hafði augljóslega mikil áhrif á knattspyrnustarfið og félagið stóð frammi fyrir því að hafa enga almennilega aðstöðu til knattspyrnuiðkunar á vetrardögum og fram að sumri. Mesta áfallið varð hjá ungum knattspyrnuiðkendum sem fram að þessu höfðu ekki þekkt neitt annað en að æfa sína íþrótt inni í Hamarshöllinni sem og á útisvæðum á sumrin.

Aðstandendur deildarinnar þurftu því að finna leiðir til að halda úti æfingum og eins óskertri starfsemi og mögulegt væri, á meðan lausn yrði fundin. Má með sanni segja að þjálfarar og aðstandendur deildarinnar hafi staðið sig með einstakri prýði í erfiðum aðstæðum. Með samtakamætti samfélagsins, annarra deilda í bænum sem og knattspyrnudeilda í nágrannafélögum var unnt að halda úti starfsemi, í breyttri mynd.

Í umsögn sem fylgdi tilnefningunni segir meðal annars: „Eiga allir sem báru þungann af þessari skipulagningu einlægt og innilegt hrós skilið fyrir vinnu sína og baráttu við að halda uppi grasrótarstarfi knattspyrnunnar í bænum eftir þetta mikla áfall.“

Fyrri greinSelfoss fékk ÍBV í bikarnum
Næsta greinÖskudagsgleði á Selfossi