Styttist í Uppsveitadeildina

Senn líður að því að keppni í Uppsveitadeild Loga, Smára og Trausta hefjist þetta árið. Fyrsta keppnin fer fram föstudagskvöldið 19. febrúar í reiðhöllinni á Flúðum.

Keppendur úr hestamannafélögunum Loga, Smára og Trausta teyma þá fram keppnishesta sína og etja sem fyrr kappi um sigur í fjórgangi, fimmgangi, tölti og fljúgandi skeiði. Auk verðlauna fyrir sigur í hverri keppnisgrein fyrir sig, verða veitt verðlaun fyrir stigahæsta keppnisliðið sem og stigahæsta einstaklinginn í lok keppnisraðarinnar.

Fyrsta keppnin fer fram föstudagskvöldið 19. febrúar í reiðhöllinni á Flúðum. Þá verður keppt í fjórgangi. Keppni í fimmgangi verður haldin föstudagskvöldið 18. mars. Töltkeppnin og keppni í fljúgandi skeiði fer svo fram þann 8. apríl. Það er jafnframt síðasti keppnisdagur í mótaröðinni.

Sigurvegarar Uppsveitadeildarinnar í fjórgangi, fimmgangi og tölti öðlast keppnisrétt í nýrri keppni, Meistarar meistaranna, sem verður haldin í Sprettshöllinni í Kópavogi þann 15. apríl.

Uppsveitadeild Loga, Smára og Trausta er rekin af Reiðhöllinni Flúðum í samstarfi við Flúðasveppi.

Fyrri greinKennsla í matreiðslu og framleiðslu á vorönn
Næsta greinLíkur á að framhald verði á mikilli sölu smærri íbúða