Stekkjaskóli fékk þátttökuverðlaun í Ólympíuhlaupinu

Ólympíuhlaup ÍSÍ var formlega sett 7. september síðastliðinn og gafst grunnskólum í landinu kostur á að taka þátt til 7. október. Með hlaupinu er leitast við að hvetja nemendur í grunnskólum landsins til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan.

Hver skóli sem tekur þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ fær viðurkenningu þar sem fram kemur hversu margir nemendur tóku þátt og heildarfjöldi kílómetra sem nemendur lögðu að baki. Þátttakan í ár hefur verið mjög góð, en nú hafa 68 grunnskólar skilað inn niðurstöðum og 16.134 nemandur hlaupið samtals 56.997 kílómetra eða rúmlega 43 sinnum í kringum landið.

Í ár, eins og undanfarin ár, hafa þrír skólar sem lokið hafa hlaupinu verið dregnir út og meðal þeirra er Stekkjaskóli á Selfossi. Stekkjaskóli fær því 100.000 króna inneign í Altis, en Altis selur vörur til íþróttaiðkunar sem nýtast nemendum á skólalóðinni eða í íþróttahúsinu.

Fyrri greinTop Gun er uppáhalds bíómyndin
Næsta greinHamar vann hraðmót karla í blaki