Snæfríður á topp tíu í Evrópu

Snæfríður Sól Jórunnardóttir. Ljósmynd/Sundsamband Íslands

Samkvæmt heimslista World Aquatics er Hvergerðingurinn Snæfríður Sól Jórunnardóttir í 10. sæti á Evrópulistanum í 200 m skriðsundi, sem er virkilega góður árangur.

Síðasta sundár var glæsilegt hjá Snæfríði en hún setti ellefu Íslandsmet í 50 m laug og sex Íslandsmet í 25 m laug. Þess má geta að hún synti einnig undir FINA-A lágmarki á HM50 í 200 m skriðsundi og endaði í 14. sæti í greininni.

Í tilkynningu frá Sundsambandi Íslands segir að það sé óhætt að segja að miðað við stöðuna í dag Snæfríður fulltrúi Íslands á Ólympíuleikunum í París á næsta ári.

Snæfríður Sól stundar æfingar og nám í Álaborg en næsta stórmót hjá henni er EM25 í Búkarest í desember, en um næstu helgi mun hún taka þátt í World Cup mótaröðinni í Berlín ásamt fimm öðrum sundmönnum frá SSÍ.

Fyrri greinKristín einnig sett sýslumaður í Vestmannaeyjum
Næsta greinAron rær á önnur mið