Slembiskákmót framundan í Fischersetrinu

Í Fischersetrinu á Selfossi. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Skákfélag Selfoss og nágrennis heldur Fischer slembiskákmót í Fischersetrinu á Selfossi laugardaginn 7. október næstkomandi kl. 11.

Tefldar verða sjö umferðir og eru tímamörkin 10 mínútur á hverja skák að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki.

Mótið er öllum opið og það þarf ekki að skrá sig fyrirfram en þátttökugjald er 1.500 krónur.

Allir eru velkomnir og verða vegleg verðlaun í boði; 25 þúsund krónur fyrir 1. sætið, 15 þúsund fyrir 2. sætið og 10 þúsund fyrir 3. sætið, auk þess sem fleiri vinningar verða í boði.

Skákdómari er Róbert Lagerman og umsjónarmaður mótsins er Ari Björn Össurarson og hægt er að fá frekari upplýsingar um mótið hjá honum á netfanginu ari.bjorn@gmail.com.

Fyrri greinVottanir tryggja faglegt stjórnkerfi og betri vörur
Næsta greinJóna Guðrún hlaut framúrskarandi nemendaverðlaun