Skyldusigur í Vallaskóla

Ljósmynd/Selfoss karfa

Selfoss vann talsvert öruggan sigur á ÍR í 1. deild kvenna í körfubolta þegar liðin mættust í Vallaskóla í kvöld. Lokatölur urðu 109-37.

Selfoss hafði frumkvæðið frá fyrstu mínútu og staðan í hálfleik var 48-18. Munurinn jókst ennþá hraðar í seinni hálfleiknum en þegar síðasti fjórðungurinn hófst leiddi Selfoss 83-28.

Kennedi Watkins var stigahæst Selfyssinga með 31 stig og 10 fráköst og Eva Rún Dagsdóttir var hársbreidd frá þrefaldri tvennu með 12 stig, 10 fráköst og 9 stoðsendingar.

Selfoss er á toppi deildarinnar með 8 stig en ÍR í 8. sæti með 2 stig.

Selfoss-ÍR 109-37 (19-11, 29-7, 35-9, 26-10)
Tölfræði Selfoss: Kennedi Watkins 31/10 fráköst, Sigríður Svanhvít Magnúsdóttir 16/9 fráköst, Anna Katrín Víðisdóttir 12, Eva Rún Dagsdóttir 12/10 fráköst/9 stoðsendingar, Andrea Líf Gylfadóttir 9/6 fráköst, Perla María Karlsdóttir 8/5 fráköst, Mariana Duran 7/8 fráköst/10 stoðsendingar/8 stolnir, Valdís Una Guðmannsdóttir 5/4 fráköst, Heiður Hallgrímsdóttir 3, Elín Þórdís Pálsdóttir 3, Sigríður Elva Jónsdóttir 3.

Fyrri greinHrasaði um reimarnar fyrir framan hóp af krökkum