Selfyssingar öflugir á Vormóti JSÍ

Keppendur júdódeildar Selfoss á Vormóti JSÍ í dag. Ljósmynd/Aðsend

Níu keppendur frá júdódeild Selfoss kepptu á Vormóti Júdósambands Íslands yngri en 21 árs, sem haldið var í dag. Selfyssingarnir stóðu sig vel og komu heim með eitt gull, fjögur silfur og þrjú brons.

„Það sáust mörg glæsileg köst og fastatök á mótinu. Mest spennandi flokkurinn var -66kg hjá Fannari Þór Júlíussyni í U18 og U21. Fannar náði að krækja í brons í U18 eftir að tapa undanúrslitum á fastataki. Hann kom svo tvíefldur og sigraði U21 örugglega,“ sagði Egill Blöndal, þjálfari í samtali við sunnlenska.is, en auk hans var Úlfur Böðvarsson þjálfari hópsins og Hörður Hreiðarsson fararstjóri. Um 40 keppendur frá sex félögum kepptu á mótinu.

Jónas Gíslason varð í 4. sæti í -42 kg flokki U13 og Óðinn Ingason náði silfri í -46 kg flokki hjá U15. Þar varð Sveinbjörn Ólafsson fjórði í -55 kg flokknum. Í U18 ára flokki tók Ólafía Christensen silfrið í -63 kg flokki og Selfyssingar hömpuðu silfri og bronsi bæði í -73 kg flokki og -81 kg flokki hjá U18. Í -73 varð Haukur Harðarsson í 2. sæti og Valur Harðarson í 3. gæti og í -81 kg flokknum varð Styrmir Hjaltason í 2. sæti og Ottó Ólafsson í 3. sæti.

Fyrri greinUppsveitir röðuðu inn mörkum
Næsta greinSelfoss bikarmeistari í 6. flokki kvenna