Selfoss vann öruggan sigur á Hamri í 1. deild karla í körfubolta í kvöld og á sama tíma valtaði Þór Þorlákshöfn yfir Skallagrím.
Það var stuð og stemning í Hveragerði í 1. leikhluta en staðan eftir hann var 25-27. Eftir það tóku Selfyssingar leikinn yfir og Hamarsmönnum gekk illa að verjast. Staðan í hálfleik var 40-58. Munurinn jókst jafnt og þétt í seinni hálfleiknum og að lokum skildu 40 stig liðin að, 85-125.
Tristan Máni Morthens fór hamförum hjá Selfyssingum, skoraði 36 stig, Aristote Bissokot var sömuleiðis sterkur með 31 stig og Fjölnir Morthens var með frábært framlag með 22 stig, 7 fráköst, 5 stoðsendingar og 6 stolna bolta. Avery Sullivan skilaði 17 stigum og 10 fráköstum. Hjá Hamri var Joshua Hardiman sá eini sem eitthvað kvað að, með 29 stig og 8 fráköst.
Þórsarar unnu þægilegan sigur á Skallagrím í Þorlákshöfn. Björninn var nánast unninn í hálfleik þar sem Þórsarar leiddu 64-48. Skallagrímur átti engin svör í seinni hálfleik og Þór sigraði að lokum 120-90.
Djorde Dzeletovic var stigahæstur hjá Þór með 33 stig og 12 fráköst, Sigvaldi Eggertsson skoraði 22 stig og Jovan Sljivancanin 20 og Halldór Garðar Hermannsson átti magnaðan leik með 10 stig, 7 fráköst og 20 stoðsendingar.
Staðan í deildinni er þannig að Þórsarar eru í 2. sæti með 10 stig, eins og topplið ÍA og Haukar sem eiga leik til góða. Selfoss er í 6. sæti með 6 stig og Hamar í 8. sæti með 4 stig.
Hamar-Selfoss 85-125 (25-27, 15-31, 25-30, 20-37)
Tölfræði Hamars: Joshua Hardiman 29/8 fráköst, Lúkas Aron Stefánsson 11/7 fráköst, Atli Rafn Róbertsson 10, Nicolas Dierynck 8, Jose Medina 8/14 stoðsendingar, Birkir Máni Sigurðarson 6, Arnar Dagur Daðason 4, Egill Þór Friðriksson 4, Birkir Máni Daðason 3, Ísak Ægir Hallgrímsson 2.
Tölfræði Selfoss: Tristan Máni Morthens 36/6 fráköst, Aristote Bissokot 31/8 fráköst, Fjölnir Morthens 22/7 fráköst/5 stoðsendingar/6 stolnir, Avery Sullivan 17/10 fráköst, Halldór Benjamín Halldórsson 8, Logi Smárason 7/5 stolnir, Sigurður Darri Magnússon 2, Óðinn Freyr Árnason 2/5 fráköst.
Þór Þ.-Skallagrímur 120-90 (32-22, 32-26, 33-28, 23-14)
Tölfræði Þórs: Djordje Dzeletovic 33/12 fráköst, Sigvaldi Eggertsson 22/8 fráköst/5 stoðsendingar, Jovan Sljivancanin 20/8 fráköst, Davíð Arnar Ágústsson 14/4 fráköst, Halldór Garðar Hermannsson 10/7 fráköst/20 stoðsendingar, Skarphéðinn Árni Þorbergsson 9, Emil Karel Einarsson 9, Ísak Júlíus Perdue 3.

