
Selfoss tók á móti Víkingi í úrvalsdeild karla í handbolta í kvöld en liðin vermdu tvö neðstu sæti deildarinnar fyrir leikinn. Eftir jafnan fyrri hálfleik stungu Víkingar af í seinni hálfleik og sigruðu 28-34.
Leikurinn var jafn allan fyrri hálfleikinn en Selfyssingar voru skrefinu á undan á löngum kafla. Staðan í hálfleik var 16-16.
Bæði lið byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti en Víkingarnir nýttu sínar sóknir mun betur og voru fljótlega komnir með fimm marka forskot, 19-24. Víkingar voru með leikinn í höndum sér en Selfyssingar eygðu von þegar þeir minnkuðu muninn í þrjú mörk þegar fjórar mínútur voru eftir. Nær komust þeir ekki, Víkingar skoruðu fjögur mörk í röð í kjölfarið og unnu öruggan sigur.
Hákon Garri Gestsson, Anton Breki Hjaltason og Hannes Höskuldsson skoruðu allir 6 mörk fyrir Selfoss, Guðjón Baldur Ómarsson 3, Sveinn Ísak Hauksson 2, Tryggvi Sigurberg Traustason 2/2 og þeir Ragnar Hilmarsson, Valdimar Örn Ingvarsson og Skarphéðinn Steinn Sveinsson skoruðu allir 1 mark.
Alexander Hrafnkelsson varði 5 skot í marki Selfoss og var með 16% markvörslu og Ísak Kristinn Jónsson varði 1 skot og var með 25% markvörslu.
Selfoss er í botnsæti deildarinnar með 1 stig en Víkingur lyfti sér upp í 9. sætið með 4 stig.
